wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Hvalir

Total questions: 30

Worksheet time: 29mins

Name
Class
Date
1.

Hvað kallast kvendýr hvala?

a)

Hryssa

b)

Kýr

c)

Gylta

d)

Kona

2.

Skíðishvalir hafa ekki tennur. Hvað hafa þeir í staðinn?

a)

Vírnet

b)

Skíði

c)

Plötur sem kallast skíði

d)

Neglur

e)

Tungur

3.

Hvað borða skíðishvalir helst?

a)

Seli

b)

Stóra fiska

c)

Lítil sjávardýr og smáfiska

d)

Hnýsur

4.

Hvað kallast afkvæmi hvala?

a)

Ungi

b)

Folald

c)

Grís

d)

Kálfur

5.

Hvalir skiptast í tvo flokka - hvaða flokkar eru það?

a)

Tannhvali og skíðishvali

b)

Tannhvali og ránhvali

c)

Skíðishvali og ránhvali

d)

Risahvali og smáhvali

6.

Hvaða hvalur er stærstur?

a)

Háhyrningur

b)

Hnýsa

c)

Búrhvalur

d)

Steypireiður

e)

Náhvalur

7.

Hvað getur Steypireiður orðið þungur?

a)

150 kíló

b)

150 tonn

c)

sama og 150 manns

d)

sama og 150 fílar

8.

Hvað getur Steypireiður orðið langur?

a)

Allt að 10 metra langur

b)

Allt að 20 metra langur

c)

Allt að 30 metra langur

d)

Allt að 40 metra langur

9.

Hvalir anda með...

a)

Hjarta

b)

Nýrum

c)

Lifur

d)

Lungum

10.

Hvar eru nasirnar á öllum hvölum?

a)

Á maganum

b)

Á sporðinum

c)

Ofan á höfðinu

d)

Undir munninum

11.

Hvers konar dýr eru hvalir?

a)

Nagdýr

b)

Fiskar

c)

Húsdýr

d)

Spendýr

12.

Hvað geta tannhvalir haft margar tennur mest?

a)

50

b)

100

c)

150

d)

200

13.

Náhvalir eru tannhvalir. Hvað hafa náhvalir margar tennur?

a)

2

b)

4

c)

6

d)

8

14.

Hvað nefnast karlkyns hvalir?

a)

Naut

b)

Tarfur

c)

Göltur

d)

Fiskur

15.

Hvað er sérstakt við tennur karlkyns náhvala?

a)

Önnur tönnin dettur alltaf af

b)

Önnur tönnin vex í hring

c)

Önnur tönnin er eins og skíði

d)

Önnur tönnin vex í gegnum efri vörina

16.

Hvalir eru spendýr. Hvernig þekkjum við spendýr?

a)

Þau verpa eggjum

b)

Þau hafa spena

c)

Þau eru spennt

d)

Þau bíta gras

17.

Hvað einkennir búrhvali helst?

a)

Þeir eru sannkallaðir kafarar

b)

Þeir eru svo forvitnir

c)

Þeir eru söngsnillingar

d)

Þeir eru stærstir

18.

Búrhvalir eru tannhvalir. Hver er uppáhaldsmatur búrhvala?

a)

Krabbi

b)

Rækjur

c)

Smokkfiskur

d)

Síld

19.

Hvað geta búrhvalir orðið langir?

a)

12 metrar

b)

14 metrar

c)

16 metrar

d)

18 metrar

20.

Hvað geta búrhvalir synt djúpt?

a)

1000 metra

b)

400 metra

c)

2000 metra

d)

1300 metra

21.

Hvers vegna geta landdýr ekki orðið eins risavaxin og stærstu hvalir?

a)

Af því bein og fætur myndu ekki þola þungann

b)

Af því stór landdýr myndu borða alla

c)

Af því fílarnir færu í fýlu

d)

Af því þau fengju ekki nóg að borða

22.

Hvaða aðferð notar hnúfubakur til að veiða?

a)

Hann syngur

b)

Hann slær þá með bægslinu

c)

Hann kallar á vini sína

d)

Hann blæs loftbólur og króar fiskana af

23.

Hver er minnsta hvalategund við Ísland?

a)

Lísa

b)

Hnísa

c)

Skvísa

d)

Elsa

24.

Þurfa hvalir að sofa?

a)

Já þeir sofa í rúmi

b)

Nei því þá drukkna þeir

c)

Já eins og önnur spendýr. Annar helmingur heilans sefur og hinn vakir.

d)

Þeir sofa aldrei

25.

Til hvers gefa tannhvalir frá sér hljóð?

a)

Til að skemmta sér

b)

Til að rata, veiða og finna aðra hvali í sjónum

c)

Til að fæla aðrar skepnur frá

d)

Til að finna fiska

26.

Af hverju koma kýr og kálfar búrhvalsins ekki í sjóinn umhverfis Ísland?

a)

Vegna hræðslu

b)

Vegna þess að tarfurinn bannar það

c)

Þau halda sig í hlýrri sjó

d)

Þau rata ekki

27.

Hver er algengasta hvalategundin við Ísland?

a)

Búrhvalur

b)

Steypireyður

c)

Háhyrningur

d)

Hnísa

e)

Hrefna

28.

Hvernig geta háhyrningar veitt dýr sem eru stærri en þeir sjálfir?

a)

Margir háhyrningar hjálpast að

b)

Þeir koma þeim að óvörum

c)

Þeir slá þá í rot með bægslinu

d)

Hann spúir eitri á bráðina

29.

Af hverju heyrum við ekki í steypireiðum?

a)

Þeir gefa ekki frá sér hljóð

b)

Hljóðin eru svo há og skræk

c)

Hljóðin eru svo djúp

d)

Hljóðin eru svo hræðileg

30.

Hvað er svif?

a)

Flugur og nit þeirra

b)

Fuglar og fuglsegg

c)

Smáar agnir í sjónum (fiskaegg, krabbaflær, lirfur og litlir ormar

d)

Litlir fiskar eins og loðna, síld og krabbafiskar