NEW
Font size
WorksheetsPróf: Hverjir Ráða#
Total questions: 19
Worksheet time: 10mins
Svava er handtekin grunuð um að hafa kveikt í Ikea geitinni.
Þrátt fyrir að hata geitur, þá hefur Svava réttindi.
þau eru rituð í sérstök ákvæði í stjórnarskrá Íslands og eru:
1) má ekki handtaka Svövu nema með heimild,
2) Svava hefur rétt á að vita afhverju henni er haldið
3) innan 24klst á dómari að ákveða hvort Svava eigi að sitja í gæsluvarðhaldi eða ekki.
en um hvað fjallar ákvæðið?
Persónufrelsi
Sakhæfi
Réttarríki
Mannréttindi
Gulla Glæpon er nýorðin 16 ára. Hún hefur nokkuð oft verið tekin fyrir þjófnað, tvisvar verið keyrð heim af lögreglunni undir áhrifum og er á síðasta séns í skólanum. Hún ákveður eitt kvöldið að fara í bíó. Hún biður pabba sinn um að skutla sér en hann segir henni að taka strætó.
Hún myndi frekar éta myglaðan hest en að taka strætó... svo hún tekur bara bílinn. Hún á engan pening svo hún rænir gamla konu í spönginni og keyrir svo af stað í bíó, sultuslök.
hún er rétt komin hjá Bláu sjoppunni þegar hún er stoppuð af löggunni.
Hvernig er líklegast að tekið verði á máli Gullu? (s.k.v bókinni)
Hún hefur náð sakhæfisaldri og gæti fengið á sig ákæru sem yrði tekin fyrir í almennum dómstól, rétt eins og önnur refsimál
þar sem hún er orðin 15 ára þá fer hún líklegast á meðferðarheimili áður en hún hefur afplánun í kvennafangelsi
líklegast verður gerður skriflegur samningur við foreldra hennar og Gulla send á meðferðarheimili.
Málið telst barnaverndarmál og því er ekki hægt að dæma hana í fangelsi. Aftur á móti geta foreldrar hennar átt von á sekt og þurfa jafnvel að sitja í gæsluvarðhaldi
10. bekkur ætlar í skólaferðalag.
Valið stendur á milli tveggja áfangastaða: Húsavíkur eða Vestmannaeyja.
Ákveðið er að bekkurinn kjósi og verður farið á þann áfangastað sem hlýtur flest atkvæði.
Hvaða hugtak á best við þessar aðstæður?
óbeint lýðræði
beint lýðræði
lýðveldi
fulltrúa lýðræði
Mörg lýðræðisríki hafa skilgreint ákveðin réttindi sem stjórnvöld eiga að fara eftir. þessi réttindi eru t.d. tjáningafrelsi, eignaréttur og félagsfrelsi. Réttindin eiga að passa að ríkið níðist ekki á þegnum sínum.
Hvað kallast þessi réttindi?
persónufrelsi
borgarleg réttindi
einstaklingsfrelsi
mannréttindi
Sá sem hugsar eins og sýnt er á myndinni: segir að samfélagið eigi á að sjá um alla einstaklinga, óháð aldri, kyni eða trú samfélaginu
myndin sýnir að samfélagið er ein heild þar sem hver einstaklingur skiptir máli
myndin sýnir samfélagslega hugsun
sá sem hugsar eins og sýnt er á myndinni: trúir að það skipti engu hvað hann geri eða segi, hann hafi ekki áhrif á samfélagið
NAUÐÞURFTIR
NÝLIÐUN
FÉLAGSMÓTUN
VIÐMIÐ
STÝRIKERFI
þessi hugtök falla öll undir:
verkefni sem öll samfélög þurfa að leysa til þess að geta lifað af
samfélagslega hegðun
leikreglur samfelagsins eða alla lærða hegðun
atriði sem eru samfélagslega samþykkt og talin æskileg
Frummótun á sér stað innan fjölskyldunnar, þar sem foreldrar ala upp börnin sín.
þegar þú varst barn spurðir þú spurninga eins og: afhverju þarf að klæða sig vel í kulda?, hver er munurinn á kú og kind?. Eftir því sem þú lærðir fleiri orð fékkstu skýrari mynd af samfélaginu sem þú býrð í.
Hvernig hefur þetta áhrif á þig í dag?
Hefur áhrif á skoðanir þínar og viðhorf, gefur þér skýrari mynd af leikreglum samfélagsins . Lærir að taka tillit til annarra og verður félagslegri í samfélaginu
breytir því hvernig þú lítur á sjálfa/n þig og hefur áhrif á skoðanir þínar á samfélaginu
hefur áhrif á sjálfsmynd og líðan. Þegar börn fá engin eða röng svör við spurningunum sínum er líklegra að þeim gangi illa í námi og eigi erfiðari með að fylgja reglum samfélagsins
hefur áhrif á samskiptafærni. börn sem fá litla frummótun eru líklegri til að eiga erfitt með samskipti
Spurt er um hugtak
Hvað er það sem stýrir lífi okkar að mestu leiti, oftast án þess að við gerum okkur grein fyrir því.
Dæmi
- þér finnst í lagi að öskra á fótoltaleik - ekki í kirkju
- þú mætir með gjöf og spariklædd/ur í brúðkaup
- þú mætir ekki óboðin/n í partý.. með foreldra þína
Síðmótun
Gildi
óskráð viðmið
skráð viðmið
Spurt er um hugtak
Afbrigði af lýðræði - en þar kýs fólkið LÍKA æðsta embættismanninn.
vísbendingar:
Ísland er þetta
Noregur er þetta ekki
lýðveldi
lýðræðisríki
réttarríki
óbeinar kosningar
AÐ BREYTA STJÓRNARSKRÁNNI -
Settu í rétta röð
1) Nýtt alþingi samþykkir frumvarpið í óbreyttri mynd
2) Þing er rofið, alþingiskosningar boðaðar að nýju
3) Alþingi samþykkir frumvarp
4) Breytingin tekur gildi
5) Sama frumvarp lagt fyrir nýkjörið Alþingi
6) Forseti samþykkir með undirskrift
1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6
3 - 2 - 5 - 1 - 6 - 4
6 - 2 - 1 - 4 - 5 - 3
4 - 2 - 3 - 6 - 1 - 5
Spurt er um hugtak
Stýrir hegðum og viðhorfum einstaklings þannig að hann hegði sér á viðurkenndan hátt við ólíkar aðstæður - t.d.
- Grunnskólakennari mætir ekki í vinnu í peysu sem stendur á
" ég elska Hitler"
- þú segir ekki starfsmanni í Bónus að þú sért að rífast við mömmu þína
- þú heilsar þegar þér er heilsað
- þú mætir ekki í sundfötum í stærðfræði
Þetta eru dæmi um leikreglur samfélagsins eða:
viðmið
gildi
almenna vitneskju
hlutverk
Spurt er um hugtak
Mjög mismunandi milli samfélaga og útskýrir hversvegna fólk sem býr í mismunandi samfélögum er svo ólíkt.
dæmi:
- barn í Kína lærir að borða með prjónum
- barn á Íslandi lærir að borða með hníf og gafli
- barn á Grænlandi lærir að umgangast sleðahunda
Viðmið
Gildi
Félagsmótun
umbun
hvaða hugtak á best við um íslenska ríkið?
þjóðfélag
samfélag
íslenskur ríkisborgrari
samfélagsþegn
Vættaskóli, jarðarbúar og Vestmannaeyjar eru dæmi um:
fjarhópa
þjóðfélag
samfélag
nærhóp
Spurt er um hugtak
Stríðsástand hefur neytt sýrlensku þjóðina á vergang og um 12 milljónir sýrlenskra flóttamanna leita að öryggi í öðrum löndum. Þegar stór hópur fólks gerast innflytjendur í öðru ríki myndast:
Samfélag
Fordómar meðal almennings
þjóðernishyggja
þjóðernishópar
Grikkir voru fyrstir til þess að nota hugtökin stjórnmál og lýðræði. Í Aþenu til forna samþykktu borgarar að hafa lýðræði sem stjórnarfyrirkomulag.
Hvað af eftirfarandi á ekki við um lýðræði og stjórnun í Aþenu.
Frjálsir karlmenn og konur yfir 40 ára sem áttu eignir voru þau einu sem máttu taka þátt í stjórnun ríkisins
Hlutverk kvenna var að fæða sveinbörn. þær voru taldar óæðri karlmönnum
Karlmenn sem ekki mættu á þjóðfundi voru kallaðir idíótar eða bjánar
Þrælar höfðu lægri stöðu en húsdýr og frjálsar konur voru verðminni en karlmenn. Frjálsar konur sem áttu eignir og voru eldri en 40 ára tóku ekki þátt á þjóðfundum
Fimm hænur sitja saman á priki. Ein þeirra er nýkomin í partýið og hinar fjórar benda nýju hænunni á að samkvæmt alþjóðlegum öryggisreglum húsdýra þá megi bara vera fjórar hænur á hverju priki, nýja hænan neitar að fara svo að hinar hænurnar verða reiðar og krefjast þess að hún fari.
Nýja hænan nennir engum leiðindum og fer því sína leið, í leit af plássi á öðru priki. Hinar hænurnar fjórar fengu sínnum vilja famgegnt, en
Hverskonar valdi er beitt í þessari sögu?
Óbeinu valdi
Beinu valdi
Ólöglegu valdi
Löglegu valdi
Spurt er um hugtak.
*Hópur fólks sem hefur svipaðar skoðanir og viðhorf til málefna sem tengjast þjóðfélaginu.
*Hópnum finnst þeirra skoðun, sú eina rétta og fólkið í hópnum rökræðir og rífst við þá sem hafa aðrar skoðanir.
*Á 4 ára fresti yfirtaka hóparnir landið í kosningherferðum með áróðri og loforðum.
Ef hópurinn nær að sannfæra nógu marga um að þeirra skoðanir og viðhorf séu rétt þá fá nokkrir úr hópnum tækifæri til þess að vinna fyrir þjóðina á Alþingi
þessi hópur kallast:
þingflokkur
stjórnmálaflokkur
hagsmunahópur
fjarhópur
Sindri þór Stefánsson er fangi sem strauk nýverið úr fangelsi og flúði land. Hann segir;
Ég var neyddur til að undirrita pappír sem á stóð að ég væri frjáls ferða minna en ef ég færi mundi ég gista í fangaklefa þar til framlenging á gæsluvarðhaldi væri samþykkt,“
þannig að í raun var hann frjáls ferða sinna, en ef hann yfirgæfi fangelsið án skýringa þá yrði hann handtekinn
Hvaða hugtak á best við um aðgerðir lögreglunnar í garð Sindra
Óbeint vald
Mannréttindi í lagalegum skilningi
Dómsvald
Réttarríki
