wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Sprellifix 3 - Rafmagn

Total questions: 23

Worksheet time: 32mins

Name
Class
Date
1.

-Minnsta eind frumefnis og samanstendur af: kjarna úr nifteindum og róteindum og síðan rafeindum sem sveima kringum kjarnann.

-Þegar rót- og rafeindir eru jafn margar er hún sögð vera hlutlaus.

a)

Rafeind

b)

Róteind

c)

Frumeind

d)

Nifteind

2.

-Jákvætt hlaðnar eindir í kjarna frumeindar

- Eru fastar í frumeindinni

a)

Nifteindir

b)

Róteindir

c)

Rafeindir

d)

Silfureind

3.

-Óhlaðnar eindir í kjarna frumeindar

a)

Rafeindir

b)

Nifteindir

c)

Róteindir

d)

Frumeindir

4.

- Neikvætt hlaðnar eindir

- Geta færst á milli frumeinda

a)

Rafeindir

b)

Nifteindir

c)

Róteindir

d)

Frumeindir

5.

- Samskonar rafhleðslur hrinda hver annari frá sér (+) (+) / (-) (-)

a)

Aðdráttarkraftur

b)

Fráhrindikraftur

c)

Þyngdarkraftur

d)

Lyftikraftur

6.

- Ólíkar rafhleðslur dragast hver að annarri (+) (-)

a)

Aðdráttarkraftur

b)

Fráhrindikraftur

c)

Segulkraftur

d)

Sólkraftur

7.

- Myndast þegar mismunandi hleðslur leitast við að jafna hver aðra út.

- Neðri hluti er neikvætt hlaðinn en efri hlutinn jákvætt hlaðinn. Þegar munurinn á rafhleðslunum er nægilega mikill hlaupa rafeindir frá neðri hluta upp í efri hluta og þá myndast þetta.

- Ef jörðin undir skýinu er jákvætt hlaðin þá slær þessu niður til jarðar.

- Fara alltaf stystu leið til jarðar/ í hæsta punkt.

a)

Þrumur

b)

Sólvindur

c)

Straumrofi

d)

Eldingar

8.

Jarðtengd járnstöng sem er komið fyrir á húsþökum.

a)

Loftnet

b)

Eldingavari

c)

Innstunga

d)

Kló

9.

Orka sem losnar þegar hlaðnar eindir færast frá einum stað til annars. Mælist í voltum (V).

a)

Rafstraumur

b)

Rafrás

c)

Rafmagn

d)

Rafspenna

10.

Færsla rafeinda frá einum stað til annars. Mælist í amperum (A).

a)

Rafstraumur

b)

Viðnám

c)

Einangrari

d)

Rafspenna

11.

Verður að vera lokuð (öll tengd saman) svo rafstraumur berist eftir henni og hún virki. Svo að hún gangi upp þarf neikvæða skautið að ná til jákvæða skautsins með tengingu.

a)

Frumeind

b)

Viðnám

c)

Straumrás

d)

Straumrofi

12.

(Takki) sem hleypir straumi áfram eða rýfur hann. Getur opnað eða lokað straumrás.

a)

Rafrás

b)

Rafspenna

c)

Viðnám

d)

Straumrofi

13.

Mælieining fyrir rafspennu.

a)

Volt

b)

Amper

c)

Ohm/óm

d)

Gráður

14.

Mælieining fyrir rafstraum.

a)

Volt

b)

Amper

c)

Spenna

d)

Straumur

15.

Öll efni sem leiða rafstraum eru þetta.

T.d. Silfur, kopar, gull og allir aðrir málmar.

a)

Einangrarar

b)

Leiðarar

c)

Spenna

d)

Straumur

16.

Efni sem leiða ekki straum.

Dæmi t.d. plast, gler, postulín o.fl.

a)

Einangrarar

b)

Leiðarar

c)

Silfur

d)

Kopar

17.

- Hefur aðeins eina leið fyrir rafeindir til að fara eftir.

- Ljósaperur tengdar í röð í einni straumrás.

- Ef ein pera springur rofnar straumrásin, það slokknar á öllum perum.

a)

Raðtengd straumrás

b)

Hliðtengd straumrás

c)

Rafhlaða

d)

Glópera

18.

- Rafeindir hafa nokkrar leiðir til að fara eftir.

- Perurnar eru í sjálfstæðri lokaðri straumrás.

- Ef eitt ljós bilar lýsa hinar áfram.

a)

Raðtengd straumrás

b)

Hliðtengd straumrás

c)

Raðtengdar rafhlöður

d)

Hliðtengdar rafhlöður

19.

- Mælikvarði á það hversu vel efni leiðir straum.

- Mælt í ómum.

a)

Viðnám

b)

Rafspenna

c)

Rafstraumur

d)

Raforka

20.

- Stuttur vír

- Gildur/breiður vír

- Kaldur vír

a)

Minna viðnám = Meiri straumur

b)

Meira viðnám = minni straumur

c)

Viðnám íhlutur

d)

Skammhlaup

21.

- Langur vír

- Grannur/mjór vír

- Heitur vír

a)

Minna viðnám = Meiri straumur

b)

Meira viðnám = minni straumur

c)

Viðnám íhlutur

d)

Skammhlaup

22.

Hlutur settur í straumrás til að auka viðnám og minnka strauminn.

a)

Vör/ öryggi

b)

Framhjátenging

c)

Viðnám íhlutur

d)

Rafeindir

23.

- Líkaminn getur orðið rafleiðari. T.d. ef manneskja heldur á gallaðri hárþurku með annari hendi og um vatnskrana með hinni.

- 15mA valda krampa og það getur verið erfitt að losa takið.

- 30mA Öndun stöðvast.

- 50mA Lífshætta.

- 2A bráður dauði

a)

Raðtengd rafrás

b)

Lífshættulegur straumur

c)

Straumrofi

d)

Jarðtenging