NEW
Font size
WorksheetsÍslenska - málfræði - miðstig I
Total questions: 70
Worksheet time: 2hrs 30mins
Í hvaða kyni er orðið slavi ?
karlkyni
kvenkyni
hvorugkyni
Orðasambandið að vera langt niðri getur merkt
Að vera í góðu skapi
Að eiga heima í kjallara
Að eiga heima undir þaki
Að vera mjög dapur
Hvaða orðflokki tilheyrir undirstrikaða orðið?
Færeysku hjónin tala færeysku og dönsku á víxl.
fornafn
atviksorð
nafnorð
lýsingarorð
Hvaða nafnorð er án greinis í eftirfarandi setningu?
Ég steig á tána á slána sem ég mætti hjá brúnni við ána.
slána
tána
brúnni
ána
Hvaða orðflokki tilheyrir fyrsta orðið í setningunni hér fyrir neðan?
Við ætlum að höggva við í skóginum við vatnið.
nafnorð (no)
sagnorð (so)
fornöfn (fn)
töluorð (to)
Hvaða töluorð er í eftirfarandi setningu?
Það er tveggja stafa tala í töluorðinu í reikningsbókinni.
tala
töluborðinu
tveggja
reikningsbókinni
Í hvaða falli standa rauðletruðu orðin?
Ég hlustaði á tveggja manna tal um daginn.
nefnifall
þolfalli
þágufalli
eignarfalli
Í hvaða falli standa rauðletruðu orðin?
Ég hlustaði á tveggja manna tal um daginn.
nefnifall
þolfalli
þágufalli
eignarfalli
Í hvaða föllum standa rauðletruðu orðin (í réttri röð)?
Presturinn gaf stráknum bók
þf. og þgf.
ef. og nf.
þgf. og þf.
þf. og nf.
Hvernig er orðið drottning í eignarfalli (ef.) eintölu (et.) með greini (gr.) ?
drottningunni
drottningarinnar
drottninguna
drottningunnar
Hvernig eru orðin nótt og fingur í þolfalli (þf.) fleirtölu (ft.) með greini (gr.) ?
næturnar, fingurna
næturna, fingurnar
næturnar, fingurnar
næturna, fingurna
Hvernig eru orðin slá og brú í þolfalli (þf.) eintölu (et.) með greini (gr.) ?
slána, brúnna
slána, brúna
slánna, brúna
slánna, brúnna
Í hvaða línu standa orðin í stafrófsröð?
skóli, skór, skriða, skæri, skæla
skór, skóli, skriða, skæri, skæla
skæla, skór, skæri, skóli, skriða
skóli, skór, skriða, skæla, skæri
Nafnorð sem enda á sérhljóða í öllum föllum beygjast veikt.
Ef nafnorðið endar á samhljóða í einu falli eða fleiri beygist það sterkt.
Rétt
Rangt
Hvaða nafnorð hafa veika beygingu ?
læri, hestur, penni, tuska, skæri, auga, kvæði
Nafnorð sem enda á sérhljóða í öllum föllum beygjast veikt
Ef nafnorðið endar á samhljóða í einu falli eða fleiri beygist það sterkt
penni, auga, kvæði
læri, penni, kvæði
penni, tuska, auga
læri, tuska, auga
Hvaða orð hafa sterka beygingu ?
listi, færi, kona, lunga, hósti, flótti
Nafnorð sem enda á sérhljóða í öllum föllum beygjast veikt
Ef nafnorðið endar á samhljóða í einu falli eða fleiri beygist það sterkt
færi
listi
flótti
hósti
Settu nafnorðið hestur í þolfalli (þf.) fleirtölu (ft.) með og án greinis (gr.)
hestanna, hesta
hestana, hesta
hestunum, hestanna
hestarnir, hesta
Hvernig eru orðin kona og banani í eignarfalli (ef.) fleirtölu (ft.) með greini (gr.) ?
kvennanna, banananna
konurnar, bananana
konunum, banönunum
kvennunum, bönönönum
Merktu við setninguna sem hefur orðin Grettir og læknir í réttu falli.
Ég sá mömmu fara með Grettir að hitta læknirinn
Ég sá mömmu fara með Gretti að hitta læknirinn
Ég sá mömmu fara með Grettir að hitta lækninn
Ég sá mömmu fara með Gretti að hitta lækninn
Settu orðin góð nótt í eignarfall (ef.) eintölu (et.)
góðra nótta
góðri nótt
góðrar nætur
góða nótt
Í hvaða falli og tölu standa orðin íslenskra kvenna ?
eignarfall (ef.) fleirtala (ft.)
þágufall (þgf.) fleirtala (ft.)
þolfall (þf.) fleirtala (ft.)
eignarfall (ef.) eintala (et.)
Hvernig eru orðin stálpuð dóttir í eignarfalli (ef.) fleirtölu (ft.) ?
stálpaðar dætur
stálpaðrar dóttur
stálpuðum dætrum
stálpaðra dætra
Hvaða sérnöfn eru í eftirfarandi orðarunu?
Esja, fjall, Gunnar, drengur, telpa, jeppi, þorp, Dalvík
fjall, jeppi, þorp
Esja, Gunnar, Dalvík
telpa, Dalvík, Gunnar
Esja, Dalvík, telpa
Leystu eftirfarandi samsett orð upp í frumparta sína (þannig að allir orðhlutarnir standi í nf.et.).
fjárbóndi, kvennaskóli, jarðarberjasulta, kústskaft
fjár, bændur, konur, skóli, ber, sulta, kústar, sköft
fé, bændur, konur, skóli, berja, sulta, kústar, sköft
fé, bóndi, kona, skóli, jörð, ber, sulta, kústur, skaft
Leystu orðið lögregluþjónn upp í frumparta sína.
lög, regla, þjónn
lögur, reglur, þjónn
lög, reglur, þjónn
lögur, reglur, þjóna
Hvaða nafnorð (no.) eru með greini (gr.) í setningunni hér að neðan?
Hún dró fána að hún í þorpinu við ána.
fána, þorpinu
þorpinu, ána
ána
fána, þorpinu, ána
Hvaða fullyrðing um lýsingarorð er rétt?
Lýsingarorð taka með sér viðskeyttan greini
Lýsingarorð lýsa nafnorðum, t.d. útliti eða eiginleikum
Lýsingarorð koma í stað nafnorða
Lýsingarorð geta bara haft sterka beygingu
Hvaða fullyrðing um lýsingarorð er rétt?
Lýsingarorð stigbreytast
Lýsingarorð geta ekki stigbreyst
Lýsingarorð geta ekki beygst í föllum
Lýsingarorð geta aðeins staðið í kvenkyni
Hvaða efsta stig af lýsingarorðinu stór telst vera rétt?
stórust
stórst
minnst
stærst
Hvernig er miðstig af lýsingarorðinu gamalt ?
eldra
eldri
gamlara
elst
Efsta stig af lýsingarorðinu há ?
hæðst
háustus
hærst
hæst
Hvernig er frumstigið af skemmst ?
skammt
skemmra
skemmt
skemmstu
Hvernig er frumstigið af skemmdastur ?
skemmdari
skemmdur
skammur
skemmtilegastur
Hvernig er eignarfall (ef.) eintala (et.) af orðunum góð drottning ?
góðrar drottningu
góðri drottningu
góðrar drottningar
góðra drottninga
Hvernig er eignarfall (ef.) eintala (et.) af skemmdur ávöxtur ?
skemmds ávöxts
skemmdan ávöxt
skemmds ávaxtar
skemmdum ávexti
Hvernig er eignarfall (ef.) fleirtölu (ft.) af forvitin kona ?
forvitnum konum
forvitnar konur
forvitinnar konu
forvitinna kvenna
Breyttu orðunum gáfuð kona þannig að lýsingarorðið fái veika beygingu og nafnorðið taki greini.
Nafnorð sem enda á sérhljóða í öllum föllum beygjast veikt
Ef nafnorðið endar á samhljóða í einu falli eða fleiri beygist það sterkt
gáfuð konan
gáfaða konan
gáfaðasti karlinn
Líttu á eftirfarandi orðalista og merktu við það orð sem er lýsingarorð:
olnboga, hafgola, máttvana, brauðmola, viðarkola
olnboga
viðarkola
máttvana
brauðmola
Líttu á eftirfarandi orðalista og merktu við það orð sem er EKKI lýsingarorð :
agndofa, vélarvana, klofvega, útilega, hissa, höggdofa, ráðþrota, óðamála
agndofa
útilega
ráðþrota
klofvega
Hvað er sérstakt við þau lýsingarorð sem enda á –a
t.d. andvaka, magnþrota og farlama?
Þau stigbreytast ekki og breytast ekki í beygingu
Þau stigbreytast og taka beyginu
Þau hafa breytilegar endingar eftir því hvert kyn þeirra er
Þau standa alltaf í hvorugkyni
Hver eru samheiti þessara orða (í þessari röð):
handleggur, ilmur, fnykur, melrakki
armur, angan, fýla, refur
úlnliður, lykt, ilmur, melgresi
olnbogi, hlýindi, reykur, minkur
fótleggur, kuldi, reykur, hundur
Hver eru samheiti eftirtalinna orða (í þessari röð):
andast, skjóla, ær, reifur
deyja, fata, kind, kátur
anda, skjól, ærsl, reiður
blása, skýla, reiður, reifaður
kyssast, skrópa, ærast, reiðast
Hver eru andheiti þessara orða (í sömu röð):
draumur, skýjaður, skrafhreifinn, rok
draumórar, bjartur, málgefinn, strekkingur
svefn, þokukenndur, óðamála, andvari
veruleiki, heiðskír, þögull, logn
syfja, móðukenndur, feiminn, hafgola
Hver eru andheiti þessara orða (í þessari röð):
kölski, letja, gylta, skáld
höfðingi, örva, grís, rithöfundur
guð, hvetja, göltur, bögubósi
draugur, klappa, gull, hugsuður
huldumaður, ástmey, ástmaður, listmálari
Hvaða orð vantar í þessa málshætti?
Enginn er _______________ í sínu föðurlandi.
Nýir _______________ sópa best.
Enginn verður _______________ biskup.
Sá er vinur sem í _______________ reynist.
Hver er sinnar _______________ smiður.
snillingur, kústar, kvenmaður, vanda, íbúðar
spámaður, vendir, óbarinn, raun, gæfu
spámaður, vendir, ólesinn, raunum, hamingju
Hvaða orð eiga að standa í eyðunum (í þessari röð)?
Sá sem er furðu lostinn er ______________
Sá sem fer snemma á fætur á morgnana er ____________
agndofa, árrisull
rotaður, kvöldsvæfur
forvitinn, duglegur
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Það búa tveir Færeyskir menn og einn grænlendingur hjá borgfirðingnum
Það búa tveir færeyskir menn og einn grænlendingur hjá Borgfirðingnum
Það búa tveir færeyskir menn og einn Grænlendingur hjá Borgfirðingnum
Hver eftirtalinna orða skal skrifa með stórum upphafsstaf?
ÍSLENDINGUR, ÍSLENSKUR, SKAGFIRSKUR, FÆREYINGUR, HVÍTASUNNA, ÞRIÐJUDAGUR, ÞORLÁKSMESSA
ÍSLENDINGUR, FÆREYINGUR, ÞORLÁKSMESSA
ÍSLENDINGUR, ÍSLENSKUR, FÆREYINGUR
ÍSLENDINGUR, SKAGFIRSKUR, ÞORLÁKSMESSA
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Skalla Grímur og Helgi Magri á Minna-Núpi tíndu Jakobsfífla á Jónsmessu
Skallagrímur og Helgimagri á Minnanúpi tíndu jakobsfífla á jónsmessu
Skalla-Grímur og Helgi magri á Minna-Núpi tíndu jakobsfífla á Jónsmessu
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Kongurinn er löngum svangur eins og ungu drengirnir á Langanesi
Kóngurinn er löngum svangur eins og ungu drengirnir á Langanesi
Kóngurinn er laungum svangur eins og ungu dreingirnir á Langanesi
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Steinka kveinkaði sér þegar hún sat á Brúnku á einkaveginum
Söngvarinn Mangi var löngum á göngu um Lánganes
Langatöng og þumalfingur Ingunnar snertu vanga Þángbrands
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Sigrún á lítinn en góðann bakpoka, ágætann hatt og skrýtin skæri
Sigrún á lítinn en góðann bakpoka, ágætan hatt og skrýtinn skæri
Sigrún á lítinn en góðan bakpoka, ágætan hatt og skrýtin skæri
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Ég sá ungan skríða úr egginu,“ heyrði ég ungan dreng segja við manninn
„Ég sá ungann skríða úr egginu,“ heyrði ég ungan dreng segja við manninn
„Ég sá ungan skríða úr egginu,“ heyrði ég ungan dreng segja við mannin
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Ég horfði á mánann milli trjánna þegar ég gekk yfir brúnna við spítalann
Ég horfði á mánann milli trjánna þegar ég gekk yfir brúna við spítalann
Ég horfði á mánan milli trjánna þegar ég gekk yfir brúna við spítalan
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Konan stóð í fjöruni og hélt á slitini flík í hendini
Konan stóð í fjörunni og hélt á slitini flík í hendinni
Konan stóð í fjörunni og hélt á slitinni flík í hendinni
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Þórarinn heimsótti Þráinn um daginn og leit á arinninn hans
Þórarinn heimsótti Þráin um daginn og leit á arinninn hans
Þórarinn heimsótti Þráin um daginn og leit á arininn hans
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Himininn var heiðskír um morguninn en þegar leið á daginn rigndi
Himinninn var heiðskír um morgunninn en þegar leið á daginn rigndi
Himinninn var heiðskír um morguninn en þegar leið á daginn rigndi
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Kjartan og Héðinn spurðust fyrir um Þórarin um morguninn
Kjartan og Héðinn spurðust fyrir um Þórarin um morgunin
Kjartann og Héðinn spurðust fyrir um Þórarin um morguninn
Kjartan og Héðinn spurðust fyrir um Þórarinn um morgunninn
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Sæun hitti Steinunni heima hjá Ingunni og Þórunni
Sæunn hitti Steinuni heima hjá Inguni og Þóruni
Sæun hitti Steinuni heima hjá Inguni og Þóruni
Sæunn hitti Steinunni heima hjá Ingunni og Þórunni
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Skoðanakönnunini var frestað því áætlunin gekk ekki upp
Skoðanakönnunnini var frestað því áætlunnin gekk ekki upp
Skoðanakönnuninni var frestað því áætlunin gekk ekki upp
Skoðanakönnuninni var frestað því áætluninn gekk ekki upp
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Það var ekki ætlun hans eða löngun að gera könnunnina umhugsunarlaust
Það var ekki ætlun hans eða löngun að gera könnuninna umhugsunarlaust
Það var ekki ætlun hans eða löngun að gera könnunina umhugsunarlaust
Krossaðu við þá línu sem er stafsett í samræmi við reglur.
Kennarinn sýndi enga miskunn eða vorkunn í einkunnagjöfinni
Kennarinn sýndi enga miskun eða vorkun í einkunagjöfinni
Kennarinn sýndi enga miskunn eða vorkunn í einkunnagjöfini
Krossaðu við línuna þar sem greinarmerkin eru sett samkvæmt reglum.
„Áttu heima á Dalvík“ spurði Jói. „Nei, á Hjalteyri,“ svaraði ég.
„Áttu heima á Dalvík?“ spurði Jói. „Nei, á Hjalteyri,“ svaraði ég.
„Áttu heima á Dalvík,“ spurði Jói. „Nei, á Hjalteyri,“ svaraði ég.
Krossaðu við það orðtak sem farið er rétt með hér fyrir neðan:
Hann kom eins og þjófur á nóttu
Hann kom eins og þjófur úr heiðskíru lofti
Hann kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti
Hvað merkir orðtakið að vera með öndina í hálsinum?
Vera með hálsbólgu
Vera með of stóra hálskirtla
Vera mikið niðri fyrir, ná varla andanum af hræðslu
Vera slakur og anda mjög rólega
Hvað af þessum orðum er nafnorð ?
heigull
rola
fjöldi
Allir möguleikar réttir
maður
Spurnarorð byrja á hv
t.d. hvernig, hvert, hvort, hvaðan, hvenær, hvar
Rétt
Rangt
Merkjið við réttan valmöguleika
(hv eða kv)
kvað (sögning að kveða) - kvalir (þjáningar) - hviða (vindhviða) - kvísl (lækjarkvísl)
kvað (spurnarorð) - kvalir (þjáningar) - hviða (vindhviða) - kvísl (talað lágt)
kvað (sögning að kveða) - kvalir (sjávarspendýr) - hviða (vindhviða) - hví (rétt fyrir dýr)
Stofn sagnorða finnst með að setja að fyrir framan sögnina
Rétt
Rangt
Stofn lýsingarorða finnst í kvenkyni, eintölu, nefnifalli með hjálparorðunum hún er.
Dæmi:
hún er fyndin - hún er ill - hún er stutt
Rétt
Rangt
