Wayground logo

Free Printable Worksheets

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Jólastærðfræði 1

Total questions: 12

Worksheet time: 3600secs

Name
Class
Date
1.

Stekkjastaur ákvað að baka nokkrar rúsínukökur. Á hverri plötu sem hann bakaði voru 16 kökur. Hann bakaði 6 plötur. Hvað bakaði jólasveininn margar kökur?

a)

72

b)

36

c)

96

d)

22

2.

Stúfur tók með sér í pokann 12 tuskudýr. Það voru fjórir hestar, fjórar uglur og fjórar rollur . Hvað hafa þessi tuskudýr samtals marga fætur?

a)

16

b)

24

c)

32

d)

40

3.

Giljagaur tók með sér 300 mandarínur til að setja í skóinn hjá þægu krökkunum. Þegar hann kom heim í hellinn aftur var hann með 165 mandarínur eftir í pokanum. Hvað hafði hann sett margar mandarínur í skónna?

a)

135

b)

235

c)

465

d)

35

4.

Þegar Þvörusleikir var að pakka inn gjöfunum notaði hann 5 metra af pappír. Hvað eru það margir sentimetrar ?

a)

5

b)

50

c)

500

d)

5000

5.

Askasleikir lagði af stað að gefa í skóinn klukkan 20. Hann kom aftur í hellinn klukkan 3:30. Hvað var hann lengi í burtu?

a)

sex og hálfan klukkutíma

b)

fimm klukkutíma

c)

sjö og hálfan klukkutíma

d)

þrjá klukkutíma

6.

Pottaskefill fann nokkra peninga neðst í pokanum sínum. Það voru fjórir hundrað krónu peningar, sjö fimmtíu krónur og átta tíu krónur. Hvað voru það miklir peningar?

Hann vissi samt ekkert hvað hann átti að gera við þá.

a)

478 kr.

b)

830 kr.

c)

578

d)

688

7.

Áður en Hurðaskellir fór af stað þurfti hann að skipta pökkunum niður í fleiri poka. Hann var með 369 pakka sem hann skipti niður í þrjá poka. Hvað fóru margir pakkar í hvern poka?

a)

136

b)

122

c)

126

d)

123

8.

Gluggagægir sá fullt af aðventuljósum í gluggunum. Í einni blokk voru níu aðventuljós. Hvað eru það margar perur?

a)

63

b)

36

c)

77

d)

99

9.

Kertasníkir fékk sprittkerti gefins á nokkrum stöðum, en það voru misjafnlega mörg kerti í gluggunum. Á sjö stöðum fékk hann fjögur kerti, á sex stöðum voru fimm kerti og á tólf stöðum voru þrjú kerti. Hvað kom hann með mörg kerti heim í hellinn?

a)

94

b)

83

c)

46

d)

100

10.

Ketkrókur tók tímann á því hvað hann væri lengi að setja í einn skó. Hann var tvær mínútur. Hvað gat hann sett í marga skó á einum klukkutíma?

a)

12 skó

b)

10 skó

c)

30 skó

d)

60 skó

11.

Leppalúði er mjög gamall. Hann er 120 árum eldri en Grýla og hún er 560 ára. Hvað er Leppalúði gamall?

a)

200 ára

b)

560 ára

c)

120 ára

d)

680 ára

12.

Grýla skreytti jólatréð á meðan að strákarnir voru að gefa í skóinn. Hún setti sex kúlur á tréð á hverri nóttu sem þeir voru að fara með dót handa þægu krökkunum. Hvað var hún búin að setja margar kúlur á tréð á jólunum?

a)

13 kúlur

b)

78 kúlur

c)

66 kúlur

d)

36 kúlur