BARU
Ukuran huruf
Lembar kerjaHernámið
Total soal: 15
Worksheet time: 8mins
Hvenær hernámu Bretar Ísland?
fyrsta september 1939
tíunda maí 1940
áttunda júlí 1941
tuttugastaogsjöunda apríl 1942
Af hverju hernámu Bretar Ísland?
Af því að þeir gátu það
Af því að Þjóðverjar voru á leiðinni
Til að tryggja öryggi siglinga á Atlantshafi
Af því að þeir voru í stríði við Íslendinga
Hver var staða Íslands í seinni heimstyrjöldinni?
Ísland barðist með Öxulveldunum
Ísland barðist með Bandamönnum
Ísland var hlutlaust
Ísland studdi Öxulveldin framan af en skipti svo um skoðun
Hvað voru margir hermenn í breska hernámsliðinu?
um eitt þúsund
um tvö þúsund
um þrjú þúsund
um fjögur þúsund
Hver var ræðismaður Þjóðverja á Íslandi í hernáminu?
Werner Gerlach
Michael Husserl
Hermann Göring
Friedrich Nietzche
Hvaða staði hertóku Bretar fyrst?
Alþingi og Stjórnarráðið
Reykjavík og Akureyri
Landsímastöðina og Ríkisútvarpið
Reykjavíkurflugvöll og Reykjavíkurhöfn
Bretar byggðu herskála fyrir hermenn sína með ansi sérkennilegu lagi. Hvað voru þessi hús kölluð?
Baggar
Braggar
Ballar
Bátar
Hver voru viðbrögð Íslendinga við hernámi Breta?
Þeir mynduðu andspyrnuhreyfingu og börðust gegn þeim
Þeir mótmæltu harðlega og voru ósamvinnuþýðir
Þeir voru fegnir að þetta voru Bretar en ekki Þjóðverjar
Þeir fóru og vældu í mömmu sinni
Bandaríkin tóku að sér hervernd Íslands í seinni heimsstyrjöldinni. Hver var staða Bandaríkjamanna þegar það gerðist?
Þeir börðust með Öxulveldunum
Þeir börðust með Bandamönnum
Þeir voru hlutlausir
Þeir studdu Öxulveldin framan af en skiptu svo um skoðun
Bandaríski herinn fór frá Íslandi eftir stíðið árið 1946, en kom aftur við stofnun Atlantshafsbandalagsins (NATO). Hvenær var það?
1946
1951
1969
1972
Hvernig lýstu Bretar hernáminu í yfirlýsingu til íslensku þjóðarinnar?
sem innrás
sem innlimun
sem aðstoð
sem ónæði
Hvar voru flestir hermenn Breta og síðar Bandaríkjamanna staðsettir?
Á Norð-Vesturlandi
Á Norð-Austurlandi
Á Vestfjörðum
Á Suð-Vesturlandi
Hvað byggði hernámsliðið EKKI á Íslandi?
Vegi og hafnir
Brýr og flugvelli
Sjúkrahús og braggahverfi
Göng og virkjanir
Af hverju er seinni heimsstyrjöldin stundum kölluð "blessað stríðið" á Íslandi?
Það dóu svo fáir Íslendingar
Nasismanum var útrýmt
Ísland græddi mikið á stríðinu
Íslendingar eru stríðsóðir
Dagurinn sem Bretar hernámu Ísland hefur stundum fengið sérstakt nafn hér á landi. Hvað er það?
Dagurinn sem nútíminn kom til Íslands
Dagurinn sem stríðið kom til Íslands
Dagurinn sem Ísland missti sakleysið
Dagurinn þegar jörðin stóð kyrr
