wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Sagnorð - málfræði

Total questions: 20

Worksheet time: 3600secs

Name
Class
Date
1.

Sagnorð eru eini orðflokkurinn sem beygist í tíðum, þau eru í nútíð og þátíð.


Til að finna nútíð má nota hjálparorðin í dag fyrir aftan sögnina (Þú kaupir trampólín í dag) og til að finna þátíð má nota hjálparorðin í gær fyrir aftan sögnina (Þú keyptir trampólín í gær).

a)

Rétt

b)

Rangt

2.

nútíð eða þátíð


fór

a)

þátíð

b)

nútíð

3.

nútíð eða þátíð


æfði

a)

þátíð

b)

nútíð

4.

nútíð eða þátíð


stekk

a)

þátíð

b)

nútíð

5.

nútíð eða þátíð


sest

a)

þátíð

b)

nútíð

6.

nútíð eða þátíð


yrki

a)

þátíð

b)

nútíð

7.

Leikmennirnir skiluðu boltunum að lokinni æfingu.


Greindu sagnorðið "skiluðu" hvort það sé í eintölu eða fleirtölu, nútíð eða þátíð og í hvaða persónu það er.

a)

3. persóna - fleirtala - þátíð

b)

3. persóna - eintala - þátíð

c)

3. persóna - fleirtala - nútíð

8.
a)

Rétt

b)

Rangt

9.
a)

Rangt

b)

Rétt

10.
a)

Rangt

b)

Rétt

11.

Núna situr hann yfir prófinu.


Greindu sagnorðið "situr" hvort það sé í eintölu eða fleirtölu, nútíð eða þátíð og í hvaða persónu það er.

a)

3. persóna - fleirtala - þátíð

b)

3. persóna - eintala - nútíð

c)

3. persóna - fleirtala - nútíð

12.

Við Gunnar erum mjög ósáttir við þetta fyrirkomulag.


Greindu sagnorðið "erum" hvort það sé í eintölu eða fleirtölu, nútíð eða þátíð og í hvaða persónu það er.

a)

3. persóna - fleirtala - þátíð

b)

2. persóna - eintala - nútíð

c)

1. persóna - fleirtala - nútíð

13.

Finndu sagnir í boðhætti


Láttu smátt en hyggðu hátt heilsa kátt ef áttu bágt, leik ei grátt við minni mátt, mæltu fátt en hlæðu lágt.

a)

Láttu, hyggðu, leik

b)

Láttu, hyggðu, heilsa, leik, mæltu, hlæðu

c)

Láttu, hyggðu, heilsa, áttu, leik, mæltu, hlæðu

d)

en, ef, ei

14.

Framsöguháttur er algengastur hátta og er notaður til að lýsa beinum staðreyndum.


Dæmi:

• Ég fer • Þú syngur • Guðmundur hlær

a)

Rétt

b)

Rangt

15.

Viðtengingarháttur er einn af þremur persónuháttum sem lætur í ljós ósk, vafa, skoðun, eitthvað skilyrðisbundið eða óraunverulegt. Hann má finna með því að setja þó að eða þótt á undan sagnorðinu.


Dæmi:

• Hún vonar að þú njótir sýningarinnar. • Ef þú færir út í búð, yrði ég afar þakklát. • Spyrðu Jökul hvort hundarnir komi líka með.

a)

Rétt

b)

Rangt

16.

Nafnháttur er einn fallhátta sagna. Nafnháttur er nafn sagnarinnar svipað og nefnifall nafnorðs og þekkist gjarnan á nafnháttarmerkinu sem undanfara. Nafnháttur er algengastur í nútíð.


Dæmi: að aka - að elda - að baka

a)

Rétt

b)

Rangt

17.

Finndu sagnir í boðhætti


Komið, allir Caprisveinar. Komið. Sláið um mig hring, meðan ég mitt kveðjukvæði um Katarínu litlu syng.


vísbending: skipun

a)

Komið, Komið, Sláið, syng

b)

Komið, Komið, Sláið, Katarínu, syng

c)

Komið, Komið, Sláið

18.

Beygðu sagnirnar í kennimyndum


nafnháttur: _____

nútíð eintala: á

þátíð eintala: átti

lýsingarháttur þátíðar: átt

a)

átta

b)

eiga

c)

ága

d)

eigði

19.

Beygðu sagnirnar í kennimyndum


nafnháttur: eiga

nútíð eintala: ___

þátíð eintala: átti

lýsingarháttur þátíðar: átt

a)

átta

b)

á

c)

eigði

d)

eitt

20.

Beygðu sagnirnar í kennimyndum


nafnháttur: kunna

nútíð eintala: ____

þátíð eintala: kunni

lýsingarháttur þátíðar: kunnað

a)

kunn

b)

kan

c)

kann

d)

kanni