Wayground logo

Free Printable Worksheets

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Fjarkennsla nr. 1

Total questions: 10

Worksheet time: 50mins

Name
Class
Date
1.

Bræðurnir Jói, Siggi og Nonni áttu allir að lesa sex blaðsíður á dag í fimm daga. Hvað eru það margar blaðsíður samtals?

a)

90 blaðsíður

b)

30 blaðsíður

c)

60 blaðsíður

d)

40 blaðsíður

2.

Í einni pakkningu af klósettpappír eru 12 rúllur. Hvað eru margar rúllur í átta pakkningum?

a)

48 rúllur

b)

86 rúllur

c)

96 rúllur

d)

106 rúllur

3.

Ef fjögurra manna fjölskylda er búin að baka 48 möffins og allir fá að borða tvær á dag. Hvað endast kökurnar þá í marga daga?

a)

12 daga

b)

8 daga

c)

4 daga

d)

6 daga

4.

Eftir fjóra daga af fjarnámi var Siggi búinn að lesa 33 blaðsíður, Jói 26 blaðsíður, Stína 16 blaðsíður og Alli 75. Hvað voru krakkarnir búnir að lesa margar blaðsíður samtals?

a)

95 blaðsíður

b)

150 blaðsíður

c)

120 blaðsíður

d)

110 blaðsíður

5.

Nonni fór út í búð að kaupa snúð-a. Hann var með 2900 krónur og átti að borga 1750 krónur. Hvað kom hann heim með mikinn afgang?

a)

1250 krónur

b)

1150 krónur

c)

950 krónur

d)

1050 krónur

6.

Á hverjum degi í fimm daga las Jóna í 25 mínútur. Hvað eru það samtals margar klukkustundir og mínútur?

a)

Tvær klukkustundir og fimmtán mínútur.

b)

Tvær klukkustundir og fimmtíu mínútur.

c)

Tvær klukkustundir og fimm mínútur.

d)

Tvær klukkustundir og tuttugu og fimm mínútur.

7.

Stína ákvaða að fylgjast með hitastiginu úti í eina viku.


Mánud. 6°C, þriðjud. 3°C, miðvikud. -4°C, fimmtud. -6°C, föstud. 5°C, laugard. 8°C og sunnud. -3°C.


Hvaða dag var kaldast? Hvað munar mörgum gráðum á heitasta og kaldasta deginum?

a)

Fimmtudag og 2 gráðum

b)

Mánudag og 12 gráðum

c)

Fimmtudag og 14 gráðum

d)

Fimmtudag og 6 gráðum

8.

Einn daginn ákvað Sigga að á hverjum klukkutíma ætlaði hún að hlaupa þrjá hringi í kringum húsið heima hjá sér. Hún byrjaði kl. 10 um morguninn og klukkan 18 byrjaði hún á síðustu hringjunum. Hvað var hún þá búin að hlaupa marga hringi í kringum húsið sitt?

a)

27 hringi

b)

24 hringi

c)

23 hringi

d)

30 hringi

9.

Snjallúr Nonna, Jóa og Lóu sýndu misjafnlega mörg skref. Nonna sýndi 3506 skref, Jóa 5389 skref og Lóu sýndi 2546 skref. Hvað voru þetta mörg skref samtals?

a)

11443 skref

b)

11451 skref

c)

11641 skref

d)

11441 skref

10.

Siggi var með 24 kexkökur. Einn daginn át hann einn fjórða hluta af þeim. Hvað át Siggi margar kökur þann daginn?

a)

10 kökur

b)

4 kökur

c)

6 kökur

d)

20 kökur