NEW
Font size
WorksheetsKafli 1 - Laun og ráðstöfunartekjur
Total questions: 20
Worksheet time: 23mins
Laun og ráðstöfunartekjur
Um hvað fjalla fjármál einstaklinga?
Að stýra eigin fjármálum. Fjármál fjalla um að afla, ráðstafa og varðveita peninga eða önnur verðmæti.
Fjármál einstaklinga fjalla um að hámarka tekjur sem einstaklingar fá eftir að þeir verða fjárhagslega sjálfstæðir.
Fjármál einstaklinga fjalla um lántökur til að kaupa lúxusvörur, eins og sportbíla og stór hús.
Fjármál einstaklinga er fræðigrein sem er aðeins fyrir háskólastúdenta.
Laun og ráðstöfunartekjur
Hver er helsti tekjuliður einstaklinga?
Eignir sem erfast frá foreldrum og öðrum ættingjum
Laun fyrir vinnu
Fjármagnstekjur af eignum
Húsnæðislán sem fólk notar til að kaupa fasteignir
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvernig eyðir fólk launum og öðrum tekjum?
Í farsíma, bíó, veitingastaði og íþróttir
Í mat og aðrar nauðsynjar, heilsugæslu, húsnæði, skatta, samgöngur, sparnað, afþreyingu og áhugamál
Í skemmtanir
Í afborganir og vexti af lánum
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvor fullyrðingin er rétt?
Ef tekjur eru meiri en útgjöld aukast eignir, ef útgjöld eru meiri en tekjur þarf annað hvort að ganga á eignir eða taka lán
Ef tekjur eru meiri en útgjöld er nauðsynlegt að auka útgjöld, ef útgjöld eru meiri en tekjur er ráðlegt að fara til launagreiðanda og biðja um launahækkun
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvað þýðir hugtakið brúttólaun?
Heildarkostnaður sem launagreiðandi borgar fyrir að hafa starfsmann í vinnu
Peningar sem launamaður getur eytt á launatímabili
Það eru launin sem starfsmaður krefst fyrir vinnu á tímabili
Heildarlaun á tímabili fyrir frádráttarliði
Laun og ráðstöfunartekjur
Hver munurinn á brúttólaunum ráðstöfunartekjum?
Kostnaðurinn við að reikna laun og greiða út
Fyrirframgreidd laun
Frádráttarliðir sem dragast frá áður en laun eru greidd út, venjulega lífeyrisiðgjöld, skattar og stéttarfélagsgjöld
Þjálfunar og endurmenntunarkostnaður starfsmanns
Laun og ráðstöfunartekjur
Af hverju eru iðgjöld í lífeyrissjóð og í lífeyrissparnað dregin frá launum?
Til að safna réttindum eða sjóði til að greiða eftirlaun
Til að fjármagna kostnað við að reka lífeyrissjóði og almannatryggingar
Til að safna peningum til að greiða fyrir áhugamál í framtíðinni
Til að greiða fyrir heilsugæslu á starfsævinni
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvað er skylduiðgjald í lífeyrissjóð á Íslandi hátt?
21,5%
12%
15,5%
19,5%
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvor þessara fullyrðinga er sönn?
Iðgjöld í lífeyrissjóð eða til lífeyrissparnaðar eru dregin frá launum áður en tekjuskattur er greiddur
Iðgjöld í lífeyrissjóð eða til lífeyrissparnaðar eru dregin frá launum eftir að tekjuskattur er greiddur
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvaða skattur/skattar eru dregnir frá launum áður en þau eru greidd út?
Virðisaukaskattur á neyslu liðins mánaðar
Tekjuskattur
Skemmtanaskattur
Beinir skattar
Laun og ráðstöfunartekjur
Af hverju greiðir fólk í stéttarfélög?
Til að knýja fram launahækkanir
Til að greiða fyrir skemmtanir starfsfólks
Til að spara fyrir eftirlaunum
Til að fjármagna félög launafólks sem hafa það markmið að gæta hagsmuna og réttinda launafólks innan sinnar stéttar
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvað eru ráðstöfunartekjur?
Sú fjárhæð sem einstaklingur ráðstafar í lífeyrissparnað og skatta
Sú fjárhæð sem einstaklingur getur ráðstafað skemmtanir og áhugamál
Laun að frádregnum sköttum og öðrum gjöldum. Ráðstöfunartekjur eru þær tekjur sem launamaður fær útborgað og getur ráðstafað til að kaupa nauðsynjar og í sparnað eða eignir
Brúttólaun að viðbættum fjármagnstekjum
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvað er kjarasamningur?
Samningur stéttarfélags launþega og samtaka atvinnurekanda um lágmarkslaun
Samningur stéttarfélags launþega og samtaka atvinnurekanda um hámarkslaun
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvernig er starfsfólki umbunað fyrir að vinna umfram umsamdar vinnustundir?
Starfsfólk sem vinnur yfirvinnu fær sérstakar þakkir á aðalfundi fyrirtækisins
Starfsfólk ávinnur sér meira orlof með yfirvinnu
Starfsfólk fær greitt með yfirvinnutaxta sem er hærri en dagvinnutaxti
Starfsfólk fær greitt með yfirvinnutaxta sem er lægri en dagvinnutaxti
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvað eru orlofslaun að lágmarki af heildarlaunum?
10,17% af launum
11,17% af launum
9,17% af launum
Frí um helgar og á helgidögum
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvernig eru orlofslaun yfirleitt greidd?
Með sérstakri greiðslu áður en fólk fer í fríið
Þegar starfsmaður lætur af störfum
Þegar starfsmaður leggur fram kvittanir fyrir eyðslu í fríi
Í flestum tilvikum þegar fólk tekur frí
Laun og ráðstöfunartekjur
Hvað er launaseðill?
Launaseðill er skriflegt bréf frá launagreiðanda til starfsmanns með þökkum fyrir vel unnin störf á tímabili
Launaseðill er yfirlit frá launagreiðanda til starfsmanns um greidd laun á tímabili.
Launaseðill er yfirlit frá launagreiðanda til starfsmanns um kjarasamningsbundin atriði
Laun og ráðstöfunartekjur
Mánaðarlaun eru 200.000 krónur, iðgjald í lífeyrissjóð er 4% og iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar eru 4% af launum. Af hvaða fjárhæð reiknast tekjuskattur?
184.000 krónur
200.000 krónur
192.000 krónur
100.000 krónur
Laun og ráðstöfunartekjur
Mánaðarlaun eru 200.000 krónur, iðgjöld í lífeyrissjóð eru 4% af launum og tekjuskattur er 50%. Hverjar eru ráðstöfunartekjurnar?
106.000 krónur
86.000 krónur
96.000 krónur
100.000 krónur
Laun og ráðstöfunartekjur
Mánaðarlaun eru 250.000 krónur, iðgjöld í lífeyrissjóð 4% af launum, tekjuskattur er 40% og persónuafsláttur á mánuði 40.000 krónur. Hvað eru ráðstöfunartekjur?
100.000 krónur
184.000 krónur
150.000 krónur
160.000 krónur
