NEW
Font size
WorksheetsKafli 2 - Sparnaður
Total questions: 15
Worksheet time: 10mins
Sparnaður
Hverjir eru helstu kostir reglulegs sparnaðar?
Sjálfvirkni, raunhæfur og hagkvæmur kostur, smám saman mun safnast fjárhæð sem skiptir máli
Sjálfvirkni, þægileg og ódýr
Þægileg, einföld en hægvirk
Engir kostir
Sparnaður
Hvor eftirtalinna fullyrðingar um reglulegan sparnað er sönn?
Þú þarft að spara a.m.k. 5% af launum þínum með reglulegum sparnaði, annars skiptir sparnaðurinn ekki máli
Það er engin lágmarksfjárhæð sem þarf að leggja fyrir í hverjum mánuði, það sem skipti mestu máli er að þú sparir í hverjum mánuði
Sparnaður
Hver eru fimm skef til að safna fyrir eign/hlut?
Markmið, Stöðumat, Áætlun, Reglulegur sparnaður, Eftirlit
Markmið, Greiðslumat, Áætlun, Sparnaður í einu lagi, Eftirlit
Markmið, Stöðumat, Áætlun, Lántaka, Eftirlit
Óskhyggja, Draumur, Panta. Taka lán, Eyða
Sparnaður
Hvað eftirfarandi er algengasta sparnaðarformið?
Hlutabréf
Ríkisskuldabréf
Bankareikningar.
Verðbréfasjóðir
Sparnaður
Hver er mismunurinn á veltu- og sparireikningum?
Veltureikningar eru fyrir sparnað til skamms tíma og til að greiða fyrir vörur og þjónustu, oftast með debetkorti. Sparireikningar eru fyrir sparnað til lengri tíma
Sparireikningar eru fyrir sparnað til skamms tíma og til að greiða fyrir vörur og þjónustu, oftast með debetkorti. Veltueikningar eru fyrir sparnað til lengri tíma
Sparnaður
Hvað ræður verði á fasteignum?
Byggingakostnaður
Fyrst og fremst framboð og eftirspurn eftir húsnæði
Vextir á markaði
Þóknun fasteignasala
Sparnaður
Hvað er skuldabréf?
Skuldaviðurkenning þar sem skuldari lofar að greiða eiganda skuldabréfsins höfuðstól til baka ásamt vöxtum á fyrirfram ákveðnum tíma
Skuldaviðurkenning þar sem eigandi skuldabréfsins er síðasti kröfuhafi í bú eða rekstur skuldara
Samkomulag á milli skuldara og lánveitanda þar sem lánveitandi lofar að greiða skuldara
Bréf með upplýsingum um skuldir tiltekins einstaklings
Sparnaður
Hvað eru hlutabréf?
Hlutabréf er bréf samsett úr ýmsum hlutum
Hlutabréf er ávísun á eignarhlutdeild í hlutafélagi. Ávöxtun hlutabréfa ræðst af arðgreiðslum
Sparnaður
Af hverju henta sjóðir vel sem sparnaðarform fyrir einstaklinga?
Með milligöngu þeirra geta einstaklingar að öllu jöfnu náð meiri eigna- og áhættudreifingu en þeir geta sjálfir
Með milligöngu þeirra geta einstaklingar sparað sér tíma og fyrirhöfn
Með milligöngu þeirra geta einstaklingar haft áhrif á rekstur margra fyrirtækja
Með milligöngu þeirra geta einstaklingar orðið sjóðstjórar
Sparnaður
Hvaða eignaflokkur hefur skilað hæstu ávöxtun til lengri tíma?
Gull og demantar
Fasteignir hafa hækkað meira en allir eignaflokkar á löngumtíma
Skuldabréf hafa að jafnaði hæstu ávöxtunina til langs tíma en ávöxtun þeirra sveiflast líka meira en aðrar eignir sem getur leitt til lægri ávöxtunar eða jafnvel taps
Hlutabréf hafa að jafnaði hæstu ávöxtunina til langs tíma en ávöxtun þeirra sveiflast líka meira en aðrar eignir sem getur leitt til lægri ávöxtunar eða jafnvel taps
Sparnaður
Ætti fólk að setja allan sparnað sinn í hlutabréf?
Fólk ætti að fjárfesta í mörgum eignaflokkum til að dreifa áhættu og láta sparnaðartíma ráða vægi þeirra
Já, það borgar sig að setja allt í hlutabréf til að fá sem hæstu ávöxtun
Nei, einstaklingar ættu að sleppa því að fjárfesta í hlutabréfum út af áhættu
Já, fjárfesta sem mest í hlutabréf til að fá atkvæðisrétt á aðalfundum
Sparnaður
Hvaða áhrif geta sveiflur á eignaverði haft á ávöxtun?
Sveiflur á eignaverði geta leitt til lágrar ávöxtunar og jafnvel taps á sumum tímabilum (hátt innkaupsverð, lágt söluverð).
Sveiflur á eignaverði geta bara leitt til hærri ávöxtunar þar sem fjárfestum er að jafnaði umbunað fyrir áhættu
Sparnaður
Hvor fullyrðingin er sönn um sveiflur í ávöxtun?
Bankareikningar hafa sögulega sveiflast meira en aðrir eignaflokkar
Ávöxtun hlutabréfa hefur sögulega sveiflast meira en aðrir eignaflokkar
Sparnaður
Hvað er markaðsáhætta?
Það er hættan á að tapa peningum vegna verðsveiflna á markaði (kaupa hátt, selja lágt).
Það er hættan á að tapa peningum vegna gjaldþrots eða greiðsluerfiðleika einstakra útgefenda (skuldabréfa, hlutabréfa).
Það er hættan á að tapa peningum vegna verðbólgu
Það er hættan á að vera of seinn að kaupa eða selja eða áður en markaðir loka
Sparnaður
Hvað er hægt að gera til að draga út markaðsáhættu?
Með því að fjárfesta í mörgum eignaflokkum og með því að draga úr vægi eigna þar sem eignaverð sveiflast mikið
Með því að fjárfesta bara í eignum sem hafa sögulega sveiflast lítið í verði
Með því að fjárfesta bara í fasteignum sem sveiflast lítið
Með því að sleppa því að spara og fjárfesta
