NEW
Font size
WorksheetsKafli 2 - Tegundir lána
Total questions: 18
Worksheet time: 13mins
Tegundir lána
Hvað er lánssamningur?
Lánssamningur er samningur þar sem lánveitandi lánar lántaka tiltekna fjárhæð gegn því að lántaki lofi að endurgreiða hana ásamt vöxtum í samræmi við skilmála
Lánssamningur er samningur þar sem lánveitandi lánar lántaka tiltekna fjárhæð gegn því að lántaki eyði henni ekki í vitleysu
Tegundir lána
Hvað er veðlán eða lán með tryggingum?
Veðlán (lán með tryggingum) eru yfirleitt með veði í eignum sem hægt er að ganga að ef lántaki getur ekki endurgreitt lánið
Veðlán (lán með tryggingum) eru yfirleitt með tryggingu í líftryggingu sem gengur til lánveitanda ef lántaki fellur frá áður en lán er greitt
Veðlán eru lán til að fjármagna veðmálastarfsemi
Tegundir lána
Hvað er veð?
Veð er samheiti yfir eignir sem eru notaðar til að greiða upp lán
Veð er annað heiti á fasteign
Veð er stytting á orðinu veður og er stundum notað þegar veður er vont
Veð er samheiti yfir eignir sem eru settar að veði sem trygging fyrir endurgreiðslu lána. Þeir sem taka húsnæðislán þurfa yfirleitt að setja fasteignina að veði
Tegundir lána
Nefndu fjórar tegundir af skammtímalánum
Bókalán, bílaleiga, reikningur í búð og lán frá mömmu og pabba
Heimild á kreditkorti, smálán, húsnæðislán og raðgreiðslusamningur
Heimild á kreditkorti, námslán, yfirdráttur og raðgreiðslusamningur
Heimild á kreditkorti, smálán, yfirdráttur og raðgreiðslusamningur
Tegundir lána
Nefndu þrjár tegundir af langtímaláni
Námslán, húsnæðislán og skuldabréfalán
Námslán, húsnæðislán og yfirdráttur
Námslán, raðgreiðslusamningur og húsnæðislán
Langt lán, mjög langt lán og rosalega langt lán
Tegundir lána
Hvað er neytendalán?
Lán sem neytendur taka hjá einhverjum sem atvinnu af að lána. Lánveitendum neytendalána er skylt að veita fyrirfram ítarlegar upplýsingar upp þau
Lán sem neytendur taka hjá einhverjum sem atvinnu af að lána. Lánveitendum neytendalána er skylt að afgreiða lánsumsóknir hratt og vel
Lán til að fjármagna alls konar neyslu
Lán frá einum neytenda til annars
Tegundir lána
Hvað er heimild á kreditkorti? Hvenær hentar hún vel fyrir fólk?
Heimild til að fá að hafa kreditkort. Hentar vel til að safna vildarpunktum
Heimild upp að tiltekinni fjárhæð til að kaupa vörur og þjónustu. Hentar fyrir lán í skamman tíma eða sem kostur til að grípa til ef ekki er til laust fé
Heimild upp að tiltekinni fjárhæð sem eigandi verður að eyða til að fá að hafa kreditkort. Hentar vel fyrir ef útgjöld eru meiri en tekjur á tímabili
Tegundir lána
Hvað er smálán? Hvenær henta þau fyrir fólk?
Lán sem hægt er að fá með stuttum fyrirvara til allt að 30 daga á vefnum eða með því að senda sms. Smálán getur hentað í neyðartilvikum
Lán sem hægt er að fá með stuttum fyrirvara til allt að 30 daga á vefnum eða með því að senda sms. Smálán henta vel þegar vantar fé til eyða
Lán sem hægt er að fá með stuttum fyrirvara til allt að 30 daga á vefnum eða með því að senda sms. Smálán henta vel til að endurfjármagna eldri smálán
Lítið lán, eiginlega bara smálán
Tegundir lána
Hvað er yfirdráttur? Hvenær hentar hann fyrir fólk?
Heimild til að taka út peninga af bankareikningi umfram innstæðu eða setja reikning í neikvæða stöðu í ótilgreindan tíma. Getur hentað ef fólk þarf lán í stuttan tíma
Heimild til að taka út peninga af bankareikningi umfram innstæðu eða setja reikning í neikvæða stöðu í ótilgreindan tíma. Hentar vel sem lán til langs tíma
Heimild til að tæma innstæðu bankareikningi. Getur hentað til að kaupa mat og aðrar nauðsynjar
Drög að lánssamningi sem á eftir að lesa yfir
Tegundir lána
Hvað er bílalán?
Samningur um að leigja bíl af bílaleigu
Samningur um að greiða hluta kaupverðs bifreiðar með skuldabréfi sem er tryggt með veði í bifreiðinni
Lán veitt í ýmsum tilgangi sem eru tryggð með veði í bíl
Bílalán er þegar einstaklingur fær lánaðan bíl frá pabba og mömmu
Tegundir lána
Hvað er námslán? Hvenær henta námslán fyrir fólk?
Lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna eða einkaaðilum til að fjármagna framhaldsnám. Námslán eru heppileg ef lán leiðir til betri lífsgæða
Lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna eða einkaaðilum til að fjármagna framhaldsnám. Námslán eru alltaf góður kostur af því þau fást á svo góðum kjörum
Lán til að fjármagna eyðslu og skemmtanir á meðan námi stendur. Námslán eru heppileg til að létta lund á meðan námi stendur
Lán frá einkaskólum til að greiða skólagjöld. Námslán eru heppileg ef lán leiðir til betri lífsgæða
Tegundir lána
Hvað er húsnæðislán?
Lán á húsnæði til að búa í skemmri eða lengri tíma
Skuldabréfalán með veði í fasteign til stutts tíma. Henta vel til að greiða fyrir að fjármagna innflutningsteiti í nýju íbúðinni
Skuldabréfalán án tryggingar til langs tíma hjá lífeyrissjóði banka, eða annarri lánastofnun. Húsnæðislán eru heppileg til að fjármagna kaupa á íbúð/fasteign
Skuldabréfalán til langs tíma hjá lífeyrissjóði banka, eða annarri lánastofnun með veði í fasteign. Húsnæðislán eru heppileg til að fjármagna kaupa á íbúð/fasteign
Hvað kostar að taka lán
Hvaða kostnað greiða lántakar af lánum?
Vextir sem greiddir eru á lánstíma og ýmsir aðrir kostnaðarliðir sem lántaki greiðir á lánstíma eða þegar lán er tekið, t.d. færslukostnaður við hverja greiðslu og lántökugjöld
Lánskostnaður eru vextir sem greiddir eru af láni
Lánskostnaður er sá kostnaður sem lántaki greiðir í upphafi eða þegar sótt er um lán
Lánskostnaður er aðallega tími og fyrirhöfn við að sækja um og taka lán
Hvað kostar að taka lán
Nefnið dæmi um þrjá kostnaðarliði sem eru greiddir í upphafi eða þegar lán er tekið
Lántökugjald, þinglýsingargjald fyrir veðskuldabréf og annan kostnað, t.d. kostnaður við greiðslumat, skjalagerð, og fleira
Lántökugjald, þinglýsingargjald fyrir veðskuldabréf og uppgreiðslugjald
Lántökugjald, fyrirframgreidda vexti og annan kostnað, t.d. kostnaður við greiðslumat, skjalagerð, og fleira
Bílastæðagjöld, kaffi á meðan beðið er og prentkostnað
Hvað kostar að taka lán
Hver er kostnaður lántaka á lánstíma?
Vexti og umsóknargjöld
Færslu- og þjónustugjöld
Vextir frá útgáfudegi til lokagjalddaga og stundum færslukostnað eða greiðslugjald af greiðsluseðlum
Lántökugjald og uppgreiðslugjald
Hvað kostar að taka lán
Hvaða kostnað greiða lántakar ef þeir lenda í vanskilum og greiða á eftir gjalddaga?
Sekt, nokkurs konar stöðumælasekt fyrir að greiða of seint
Kostnað fyrir innheimtubréf
Dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags og innheimtukostnað á gjalddaga í vanskilum
Samningsvexti frá gjalddaga til greiðsludags
Hvað kostar að taka lán
Hvað er árleg hlutfallstala kostnaðar (ÁHK)?
ÁHK mælir heildarkostnað neytendalána, þ.e. bæði vexti og annan kostnað svo sem lántökugjöld, kostnað við greiðslu afborgana, o.fl., sem hlutfall af höfuðstól á ári
ÁHK mælir heildarvaxtakostnað neytendalána, þ.e. samtölu vaxta sem greiddir eru af láni í hlutfalli af höfuðstól
ÁHK er fjöldi gjalddaga af láni í hlutfalli af lánstíma
ÁHK er annað orð fyrir upphafskostnað af lánum
Hvað kostar að taka lán
Hvaða áhrif hefur upphafskostnaður á ÁHK fyrir stutt lán? En langtímalán?
Upphafskostnaður vigtar lítið í ÁHK á skammtímalánum en hefur tiltölulega mikil áhrif á langtímalán
Upphafskostnaður vigtar þungt í ÁHK á skammtímalánum en hefur tiltölulega lítil áhrif á langtímalán þar sem þá dreifist kostnaðurinn á langan tíma
