wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Maður og náttúra kafli 5.1

Total questions: 11

Worksheet time: 6mins

Name
Class
Date
1.

Hvað er steingervingur

a)

Manngerður steinn.

b)

Leifar fornra lífvera.

c)

Lífvera sem varð að steini, líkt og tröll.

d)

Steinn sem hefur legið í jarðlögunum frá tímum risaeðlanna.

2.

Hvað merkir orðið þróun?

a)

Að lífvera breytist snögglega, eins og t.d. stökkbreyting.

b)

Að lífvera þroskist, t.d. fluga breytist úr eggi í púpu í lirfu og í flugu.

c)

Að lífvera breytist frá einum tíma til annars, tekur oftast langan tíma.

d)

Að dýr aðlagist umhverfinu.

3.

Hvað er þróunartré?

a)

Tré sem í dag vex bara í Amason og er talinn vera forfaðir allra trjáa.

b)

Tré sem sýnir ættartengsl innan fjölskyldna og hvernig sjúkdómar erfast.

c)

Tré sem sýnir hvernig skyldar tegundir eða stærri hópar hafa þróast frá sameiginlegum forfeðrum.

d)

Tré sem sýnir líffræðilegan fjölbreytileika innan hvers hóps lífvera ásamt skyldleika þeirra.

4.

Barátta um að komast af og aðeins hluti af afkvæmum kemst af. Hæfileikinn til að lifa af og fjölga sér er háður því að vera vel aðlagaður að umhverfi sínu. Sá hæfasti fjölgar sér. Hverju er verið að lýsa?

a)

Aðlögun

b)

Stökkbreytingu

c)

Þróun

d)

Náttúruvali

5.

Hvers vegna er líffræðileg fjölbreytni mikilvæg fyrir þróun lífsins.

a)

Breytileiki meðal einstaklinga eykur líkur á að einhver hafi betri möguleika á að komast af ef umhverfið breytist.

b)

Það eykur fjölbreytni á ávöxtum og fleiri möguleika t.d. á blómum sem okkur langar að kaupa.

c)

Svo lífið á jörðinn haldi áfram að þróast.

d)

Það þarf ekki mikla fjölbreytni, bara réttar tegundir svo okkur líði vel.

6.

Hvers vegna líkjast hvalir og fiskar á margan hátt þótt þeir séu mjög fjarskyldir.

a)

Hvalir og fiskar eru mjög skyldir.

b)

Hvalir og fiskar eru báðir komnir af eðlum sem lifðu í sjó.

c)

Fiskar stökkbreyttust stuttu eftir að þeir skriðu á land og þróuðust svo yfir í hvali. Þess vegna hafa þeir ekki tálkn.

d)

Þeir hafa báðir aðlagast umhverfninu sem þeir lifa í, hafinu í báðum tilvikum.

7.

Hvernig getum við nýtt þekkingu okkar í erfðafræði til að átta okkur betur á þróun dýra.

a)

Með því að skoða steingervinga.

b)

Með því að rannsaka beinabyggingu þeirra.

c)

Með því að skoða DNA ólíkra dýrategunda og sjá hvað er líkt og hvað ekki.

d)

Með því að skoða myndir og lifnaðarhætti dýranna.

8.

Finkurnar á Galapagos eyjum er skýrt dæmi um það þegar ný dýrategund verður til, þegar dýr úr stofninum (upprunalegum hópi) einangrast og aðlagast nýju umhverfi, þar til hún getur ekki parast við gamla hópinn.

a)

Rétt

b)

Rangt

9.

Piparfetarnir í Bretlandi eru skýrt dæmi um það þegar ný dýrategund verður til, þegar dýr úr stofninum (upprunalegum hópi) einangrast og aðlagast nýju umhverfi þar til hún getur ekki parast við gamla hópinn.

a)

Rétt

b)

Rangt

10.

Vísindamaðurinn sem setti fram þróunarkenninguna var..

a)

Mark Hubble.

b)

Edwin Darwin.

c)

Charles Darwin.

d)

Marie Curie

11.

Forsenda þess að náttúruval virki er að..

a)

genavíxl verði á litningum.

b)

útlitsbreyting að völdum sólar verði á lífveru.

c)

efnaskipti aukist.

d)

breytileiki af völdum stökkbreytinga sé innan stofns.