wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Kalda stríðið

Total questions: 20

Worksheet time: 10mins

Name
Class
Date
1.

Hvaða atburður markar upphaf kalda stríðsins

a)

Berlínardeilan 1948

b)

Stofnun NATO 1949

c)

Stofnun Varsjárbandalagsins 1955

d)

Lok seinni heimsstyrjaldarinnar 1945

2.

Hvert er helsta einkenni kalda stríðsins?

a)

Umfangsmikil stríðsátök stórveldanna eftir seinni heimsstyrjöldina

b)

Stórveldin réðust aldrei hvort á annað en studdu mismunandi stríðsaðila í minni stríðum

c)

Mikið samráð sigurvegaranna í seinni heimsstyrjöldinni í gegnum öryggisráð Sameinuðu þjóðanna

d)

Mikil fækkun kjarnorkuvopna í kjölfar afvopnunarsamninga milli stórveldanna eftir leiðtokafundinn í Höfða 1986

3.

Árið 1946 gerðu Íslendingar samning um hervernd landsins. Við hverja var þessi samningur gerður?

a)

Bretland

b)

NATO

c)

Danmörku

d)

Bandaríkin

4.

Hvað var Marshall áætlunin?

a)

Fjárhagslegur stuðningur Bandaríkjanna við Evrópuríki til að draga úr áhrifum kommúnista

b)

Þrýstingur Bandaríkjamanna á Öxulveldin og þjóðirnar sem höfðu stutt þau að greiða stríðsskaðabætur

c)

Áætlun um að umkringja Sovétríkin með ríkjum hliðhollum Bandaríkjunum með því að borga þeim háar fjárhæðir

d)

Skipulagðar aðgerðir til að berjast gegn kommúnistum í ríkjum Evrópu sem lentu Vesturveldamegin við Járntjaldið

5.

Hvað var Járntjaldið?

a)

Sýningarskáli Sovétríkjanna á heimssýningunni í Boston 1962 sem bar af skálum annarra þjóða

b)

Annað orð yfir höfuðstöðvar sovéska kommúnistaflokksins í Kreml í Moskvu

c)

Víggirt landamæragirðing sem lá gegnum Evrópu milli yfirráðasvæðis Vesturveldanna og Sovétríkjanna

d)

Eldflaugakerfi Sovétríkjanna í Austur-Evrópu sem hafði drægni yfir alla Vestur-Evrópu

6.

Hvers vegna var Íslandi boðið að vera ein af stofnþjóðunum í NATO árið 1949 þrátt fyrir að Íslendingar hefðu engan her?

a)

Af því að vesturveldin vorkenndu Íslandi að vera varnarlaust úti í miðju hafi

b)

Af því að lega landsins var mikilvæg til að geta fylgst með ferðum Sovéska flotans út á Atlantshaf

c)

Af því að Íslendingar óskuðu eftir því og höfðu stutt Bandamenn í seinni heimsstyrjöldinni

d)

Af því að allar þjóðir sem þess óskuðu gátu gerst stofnaðilar að bandalaginu hvort sem þær áttu her eða ekki

7.

Í mótmælunum gegn þátttöku Íslands í NATO var í fyrsta skipti beitt táragasi gegn mótmælendum á Íslandi. Hvenær var táragasi beitt næst gegn mótmælendum á Íslandi?

a)

Í mótmælum gegn Kóreustríðinu 1952

b)

Í mómælum gegn Víetnamstríðinu 1968

c)

Í mótmælum gegn Íraksstríðinu 2005

d)

Í Búsáhaldabyltingunni 2009

8.

Hvað var tilhneiging Íslendinga til að reyna að græða á bandaríska hernum stundum kölluð?

a)

Siðleysi

b)

Græðgi

c)

Mang

d)

Aronska

9.

Bandaríski herinn fékk að hafa herstöð á Keflavíkurflugvelli þar sem nú heitir Ásbrú frá árinu 1951, en hvaða ár var herstöðinni lokað?

a)

1989

b)

1992

c)

2006

d)

2009

10.

Hversu mörg Þorskastríð háðu Íslendingar við Breta vegna útfærslu landhelginnar?

a)

Eitt

b)

Tvö

c)

Þrjú

d)

Fjögur

11.

Bandaríski herinn barðist með Suður-Kóreu í Kóreustríðinu, en hvaða þjóð barðist með Norður-Kóreu?

a)

Indókína

b)

Kína

c)

Sovétríkin

d)

Víetnam

12.

Hvernig lauk Kóreustríðinu?

a)

Suður-Kórea lagði megnið af Norður-Kóreu undir sig

b)

Norður-Kórea lagði megnið af Suður-Kóreu undir sig

c)

Norður- og Suður-Kórea voru sameinuð í eitt ríki

d)

Landamærin milli Norður- og Suður-Kóreu voru óbreytt frá því fyrir stríð

13.

Á árunum 1952 til 1974 færðu Íslendingar landhelgina úr 3 mílum í 200 mílur. Í hvaða skrefum var það gert?

a)

Úr 3 mílum í 50 og svo í 200 mílur

b)

Úr 3 mílum í 4 mílur og svo í 200

c)

Úr þremur mílum í 4, svo í 50 og loks í 200

d)

Úr þremur mílum í 4, svo 50. 150 og loks í 200

14.

Hvaða baráttuaðferð beittu Bretar helst í Þorskastríðunum?

a)

Að skjóta á íslensk skip

b)

Að sigla á íslensk skip

c)

Að klippa net aftan úr íslenskum skipum

d)

Að hertaka íslensk skip og sigla þeim til Bretlands

15.

Hvaða baráttuaðferð beittu Íslendingar helst gegn Bretum í Þorskastríðunum?

a)

Að skjóta á bresk skip

b)

Að sigla á bresk skip

c)

Að klippa net aftan úr breskum skipum

d)

Að hertaka bresk skip og sigla þeim til Íslands

16.

Hvers vegna snerist almenningsálitið gegn Víetnamstríðinu í Bandaríkjunum?

a)

Stríðið kostaði mikið og fjárhagur Bandaríkjanna var að hruni kominn

b)

Stríðinu var sjónvarpað og Bandaríkjamenn sáu raunverulegar hörmungar stríðsrekstursins

c)

Sovétríkin ráku mikinn áróður gegn stríðinu í Bandaríkjunum

d)

Bandaríkjamenn sáu ekki ástæðu til þess að bandaríski herinn væri að berjast gegn því að frönsk nýlenda fengi sjálfstæði

17.

Hvaða stefnubreyting Mikhail Gorbachev leiðtoga Sovétríkjanna skipti sköpum um að enda kalda stríðið?

a)

Hann leyfði óheftan markaðsrekstur í Sovésku viðskiptalífi

b)

Hann leyfði frjálsar kosningar þar sem margir flokkar máttu bjóða fram

c)

Hann leyfði óheft tjáningarfrelsi þannig að það mátti gagnrýna stjórnvöld án refsingar

d)

Hann opnaði landamæri Sovétríkjanna svo fólk gat flutt burt úr landinu ef það vildi

18.

Hvað hétu áætlanir Mikhails Gorbachev um umbætur í efnahagslífi Sovétríkjanna og auknu tjáningarfrelsi?

a)

Perestrokja og Glasnost

b)

Lada og Pravda

c)

Smirnoff og Stolichnaya

d)

Kalashnikov og Molotov

19.

Eftir að Boris Yeltsin komst til valda í Rússlandi ákváðu hann og forsetar annarra Sovétlýðvelda að leysa Sovétríkin upp. Hvaða ár liðuðust Sovétríkin í sundur í þau 15 lönd sem höfðu myndað þau?

a)

1989

b)

1991

c)

2001

d)

2006

20.

Hvert þessara landa var EKKI eitt ríkjanna sem mynduðu Sovétríkin?

a)

Aserbaídsjan

b)

Hvíta-Rússland

c)

Mongólía

d)

Túrkmenistan