WorksheetsATF0176 - viðbragðsskilyrðing og virk skilyrðing
Total questions: 4
Worksheet time: 12mins
Jóa langar að kaupa sér nýja tölvu, hann tekur lítinn þátt í því að taka til á heimilinu. Mamma hans bendir honum á að fara út með ruslið sem hann gerir og þegar hann kemur aftur inn réttir hún honum pening svo hann geti byrjað að safna. Eftir þetta fer Jói mun oftar út með ruslið. Þetta er dæmi um,
viðbragðsskilyrðingu
virka skilyrðingu
Það að vera úti og skyndilega fer að hvessa og kólna svo að við skjálfum út kulda er dæmi um . . . og að klæða sig í úlpu þannig að manni er ekki lengur kalt, er dæmi um...
svarhegðun - virka hegðun
virka hegðun - viðvana
Ungbarn sem er vant því að sofa þar sem hljótt er í kringum það, vaknar skyndilega við hátt gelt í hundi. Barnið fer að gráta af hræðslu.
skilyrt tilfinningaviðbragð
virka hegðun
Gunnu finnst mjög gaman að fara út í frímínútur, um leið og skólabjallan hringir þegar frímínútur hefjast fær hún "fiðrildi" í magann og byrjar strax að klæða sig í útifötin. Þegar bjallan hringir í lok dags sem gefur til kynna að skólinn sé búin fær hún samt "fiðrildi" í magann, jafnvel þótt að frímínútur dagsins séu búnar. Þetta er dæmi um
virka skilyrðingu
viðbragðsskilyrðingu
