wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Byrjendalæsi

Total questions: 19

Worksheet time: 12mins

Name
Class
Date
1.

Eindaraðferðir byggja á...

a)

fyrri reynslu og þekkingu lesanda

b)

að umskrá rittákn í málhljóð

c)

stærðfræði

d)

að vinna frá heild og niður í einingar eða eindir

2.

Málheildaraðferðir byggja á...

a)

að umskrá rittákn í málhljóð

b)

að vinna frá hluta að heild

c)

að vinna frá heild og niður í einingar eða eindir

d)

náttúrufræði

3.

Hvaða staðhæfing á við um samvirkar aðferðir í læsiskennslu?

a)

Samvirkar aðferðir teljast til málheildaraðferða

b)

Samvirkar aðferðir er ný þáttaröð fyrir kennara á RÚV

c)

Samvirkar aðferðir teljast til eindaraðferða

d)

Samvirkar aðferðir eru mitt á milli eindar- og málheildaraðferða

4.

Málheildaraðferðir byggja á fyrri þekkingu og reynslu lesandans á málinu

a)

Satt

b)

Ósatt

5.

Eitt af einkennum fyrirmyndarkennslu í læsi er áhersla á vinnu með bækur og gæðatexta

a)

Satt

b)

Ósatt

6.

Eitt af einkennum fyrirmyndarkennslu í læsi er að samræður eru nýttar sem kennsluaðferð og kennarar ræða við nemendur um efni textanna sem þau lesa og vinna með

a)

Satt

b)

Ósatt

7.

Eitt af einkennum fyrirmyndarkennslu í læsi er að umhverfi nemenda er auðugt af texta og máli

a)

Satt

b)

Ósatt

8.

Fyrirmyndarkennsla í læsi einkennist af kennslu þar sem einungis er lögð áhersla á að nemendur læri stafi og hljóð

a)

Satt

b)

Ósatt

9.

Eitt af einkennum fyrirmyndarkennslu í læsi einkennist af sjálfstæðum lestri nemenda sem hafa aðgang að úrvali af vönduðum textum

a)

Satt

b)

Ósatt

10.

Fyrirmyndarkennsla í læsi einkennist af vinnu nemenda í vinnubókum

a)

Satt

b)

Ósatt

11.

Eitt af einkennum fyrirmyndarkennslu í læsi er að verkefni í læsi og ritun hafa raunverulegan tilgang

a)

Satt

b)

Ósatt

12.

Hvað eru mörg þrep í grunnlíkani Byrjendalæsis?

a)

1

b)

2

c)

3

d)

Það eru engin þrep í grunnlíkaninu

13.

Hvað af eftirtöldu á við um fyrsta þrep Byrjendalæsis?

a)

Nemendur velja sér lesefni af bókasafni

b)

Gæðatexti er kynntur fyrir nemendum

c)

Nemendur vinna í vinnubókum

d)

Nemendur vinna að enduruppbyggingu textans

14.

Hvað af eftirtöldu á við um annað þrep í Byrjendalæsi?

a)

Nemendur hluta á fyrirlestur frá kennara

b)

Nemendur vinna verkefnablöð

c)

Nemendur lesa bækur sem settar eru upp eftir ákveðnu kerfi

d)

Nemendur æfa tæknilega þætti í lestrarnáminu t.d. í stöðvavinnu

15.

Hvað af eftirtöldu á við um þriðja þrep í Byrjendalæsi?

a)

Nemendur lesa eins margar bækur og þeir geta

b)

Nemendur lesa texta eins hratt og þeir geta

c)

Nemendur semja efni á grunni gæðatexta sem unnið var með 1. og 2. þrepi

d)

Nemendur lesa stuttan texta og fara svo í frímínútur

16.

Hver er talinn grundvöllur árangurs í læsisnámi samkvæmt Byrjendalæsi?

a)

Að byggja allt nám og alla kennslu á hljóðaaðferð

b)

Samþætting tals, hlustunar, lesturs og ritunar

c)

Að leggja kapp á lestrarhraða og lesfimi, aðrir þættir skipta ekki máli

d)

Að byggja allt nám og alla kennslu á eindaraðferðum

17.

Hversu oft er miðað við að læsi sé kennt innan ramma Byrjendalæsis?

a)

Einu sinni á dag, þrjá daga vikunnar

b)

Fimm sinnum á dag, tvisvar í viku

c)

Fimm sinnum á dag, fimm daga vikunnar

d)

Tvisvar til þrisvar á dag, fimm daga vikunnar

18.

Meginmarkmið Byrjendalæsis er að börn nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni

a)

Satt

b)

Ósatt

19.

Hver er höfundur aðferðarinnar Byrjendalæsi?

a)

Þóra Rósa Geirsdóttir

b)

Rósa Eggertsdóttir

c)

Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir

d)

Jenný Gunnbjörnsdóttir