Font size
WorksheetsNæringarfræði - hlutapróf 1
Total questions: 20
Worksheet time: 8mins
Hve mörg grömm ættum við að fá að lágmarki á dag af trefjum?
25 grömm
35 grömm
12 grömm
15 grömm
Hve mörg % af heildarorkunni ætti að koma úr kolvetnum?
25-45%
10-20%
45-60%
10%
Fitusýran sem sést hér til vinstri er:
Mettuð
Einómettuð
Fjölómettuð
Ómega-3
Fitusýran hér til vinstri er táknuð:
C18:2n3
C2:18n6
C18:3n3
C18:2n6
Hvað er átt við með hugtakinu "fríar sykrur" ?
Sama og blóðsykur. Þarf ekki að brjóta niður eða breyta til að nýtast strax sem orkugjafi
Það sama og viðbættur sykur
Sykrur í hunangi, sírópi og ávaxtasafa
Viðbættur sykur og sykur í matvælum eins og hunangi, sírópi og ávaxtasöfum.
Kolvetni flokkast í:
Einsykrur, tvísykrur og fjölsykrur
Einsykrur, tvísykrur og þrísykrur
Mettaðar, einómettaðar og fjölómettaðar
Vatnsleysanleg og óvatnsleysanleg
Ungar konur á Íslandi skortir gjarnan eftirtalin næringarefni í fæði sitt:
C-vítamín, A-vítamín og selen
Kalk, kalíum og magnesíum
Joð, járn og fólasín
Brennistein, flúor og sink
Eitt gramm af alkóhóli gefur:
4 kkal
7 kkal
9 kkal
12 kkal
Sætasta sykran er:
Frúktósi
Glúkósi
Galaktósi
Súkrósi
Eftirtalin sykra er líka kölluð blóðsykur
Galaktósi
Laktósi
Súkrósi
Glúkósi
Hvað er það sem veldur því að fita verður fljótandi?
Hún inniheldur fitusýrur sem hafa tvítengi og eru þess vegna beinar keðjur og pakkast vel saman
Hún inniheldur fitusýrur sem hafa tvítengi og eru þess vegna bognar og pakkast þar með illa saman
Hún inniheldur ómettaðar fitusýrur sem eru beinar og pakkast illa saman
Hún inniheldur mikið af mettuðum fitusýrum sem eru beinar og pakkast vel saman
Fitan inniheldur mikið af mettuðum og meðallöngum fitusýrum:
Kjötfita
Ólífuolía
Kókosfita
Smjör
Ómega-3 fitusýrurnar í fiski eru:
EPA og DHA
Línól- og línólsýra
Valín og Lýsín
Glúkósi og frúktósi
Eftirtalið inniheldur mest af ómega-3 fitusýrum:
Majónes, franskar og pepperóni
Sólblómaolía, sojaolía og smjör
Kókosfita, kartöfluflögur og kex
Feitur fiskur, hörfræ og valhnetur
Hvaða áhrif getur ofneysla á ómega-6 fitusýrum á kostnað ómega-3 fitusýra haft á heilsuna?
Ómega-3 fitusýrur eru blóðþynnandi og minnka líkur á blóðtappa
Ómega-6 fitusýrur geta verið bólgumyndandi og valdið bólgusjúkdómum
Ómega-3 fitusýrur geta haft slæm áhrif á þarmaflóruna og þar með heilsuna
Ómega-6 fitusýrur geta aukið líkur á krabbameini
Prótín eru gerð úr:
einsykrum
amínósýrum
fitusýrum
kalki
Eftirtaldar amínósýrur eru lífsnauðsynlegar:
Glúkósi og frúktósi
Línól- og línólensýrur
Alanín og arginín
Valín og lýsín
Amínósýran getur stundum orðið lífsnauðsynleg fyrir íþróttamenn:
Glútamín
Histidín
Phenylalanín
Glýsín
Hver eru helstu hlutverk próteina?
Að byggja upp og endurnýja vöðva og vefi, hormón og ensím
Eru helsti orkuforði líkamans
Fyrst og fremst að gefa orku
Að fóðra góðgerlana í þörmum og halda blóðsykri jöfnum og blóðfitu í lágmarki
Ofneysla á próteinum getur valdið:
Skorpulifur
Sjúkdómnum phenylketonurea (PKU)
Niðurbroti á vöðvum og beinþynningu
Vökva- og steinefnaskorti og hugsanlega álagi á nýrun
