WorksheetsNæringarfræði - hlutapróf 2 - fituleysanleg vítamín
Total questions: 17
Worksheet time: 17mins
Hvaða vítamín hefur eftirtalin hlutverk?
Mikilvægt fyrir sjón, húð og slímhúð, ónæmirkerfið og vöxt barna
A
D
E
K
Hvað heita afbrigði A-vítamíns sem koma úr annars vegar dýraríkinu og hins vegar jurtaríkinu?
Retinól úr dýraríkinu og
Beta-karótín úr jurtaríkinu
Níasín úr dýraríkinu og ríbóflavín úr jurtaríkinu
Glúkósi úr dýraríkinu og súkrósi úr jurtaríkinu
Valín úr dýraríkinu og lýsín úr jurtaríkinu
Hvaða matvæli úr dýraríkinu inniheldur mest A-vítamín?
Rautt kjöt
Lifur og lifrarafurðir
Jógúrt
Ostur
Í hvaða matvælum finnst beta-karótín helst?
Í hnetum, fræjum og korni
Í eplum og melónum
Í dökkgrænu blaðgrænmeti
Í appelsínugulum ávöxtum og grænmeti
Hver eru helstu skortseinkenni A-vítamíns?
Taugalömun
Niðurgangur, svimi og húðútbrot þar sem sól skín á
Næturblinda, blinda, sýkingar og léleg bein
Stækkaður skjaldkirtill
Hvað gerist ef við borðum of mikið af beta-karótínríkri fæðu og er það hættulegt?
Verðum fyrir lifrarskaða og það er hættulegt
Verðum fjólublá á litinn og það er hættulegt
Verðum appelsínugul á litinn og það er ekki hættulegt
Verðum appelsínugul á litinn og það er hættulegt
Ofneysla af A-vítamíni getur valdið:
Fósturskaða
Beinbrotum
Niðurgangi
Húðblæðingum
Hvaða vítamín getur líkaminn myndað sjálfur með hjálp sólarljóss?
D
A
E
K
Í hvaða fæðu finnst D-vítamín helst?
Lýsi, feitum fiski, sólþurrkuðum sveppum
Ferskmeti svo sem ávöxtum og grænmeti
Kjöti og innmat
Korni, baunum og hnetum
Hvaða vítamín er það eina sem Landlæknir ráðleggur Íslendingum að taka inn sem bætiefni?
K
E
A
D
Hvert af eftirtöldu er meðal hlutverka D-vítamíns í líkamanum?
Nauðsynlegt til að kalk nýtist til að byggja upp bein.
Mikilvægt fyrir sjón og húð
Mikilvægt til að stjórna blóðsykursjafnvægi
Nauðsynlegt fyrir orkuvinnslu
Hver eru helstu skortseinkenni D-vítamíns?
Næturblinda og blinda
Niðurgangur og sturlun
Beinkröm og beinmeyra en líka þunglyndiseinkenni
Marblettir
Hvert af eftirtöldum vítamínum er framleitt í þörmum með hjálp gerla?
D
E
K
A
Hvað af eftirtöldu telst til helstu hlutverka K-vítamíns?
Mikilvægt fyrir sjón
Byggja upp bein
Andoxunarefni
Blóðstorknun
Hvað af eftirtöldu er hlutverk E-vítamíns í líkamanum?
Blóðstorknun
Andoxunarefni, verndar lungun sérstaklega
Mikilvægt fyrir starfsemi lifrar
Mikilvægt fyrir beinvöxt
Hver af eftirtöldum vítamínum eru fituleysanleg?
A-, D-, E- og K
C- og B
A-, B- og C
K- og E-
Hver af eftirtöldum vítamínum og steinefnum eru EKKI pör?
Kalk og D-vítamín
Járn og C-vítamín
Selen og E-vítamín
Sink og K-vítamín
