NEW
Font size
WorksheetsNæring sérstakra hópa
Total questions: 18
Worksheet time: 9mins
Aðeins er hægt að vera með ofnæmi fyrir....
Próteinum
Steinefnum
Fitusýrum
Kolvetnum
Eitt ef eftirtöldu inniheldur glúten.....
Kartöflur
Kínóa
Bankabygg
Bókhveiti
Eitt af eftirtöldu inniheldur ekki glúten..........
Maís
Heilhveiti
Spelt
Kúskús
Hvað þurfa óléttar konur margar hitaeiningar aukalega á dag að meðaltali?
300 kkal
400 kkal
700 kkal
900 kkal
Hvaða næringarefnum þurfa óléttar konur að passa að fá nóg af?
C-vítamín, járn, þíamín og selen
K-vítamín, A-vítamín, magnesíum og flúor
A-vítamín, bíótín, kalíum og fosfór
Joð, fólasín, kalk, D-vítamín og járn
Af hvaða næringarefni safna fóstur birgðum af til að eiga nóg af fyrstu 6 mánuði ævinnar?
Járni
Kalki
C-vítamíni
D-vítamíni
Hvaða matvæli hér að neðan er eina matvælið sem óléttar konur mega borða nóg af?
Hrár fiskur
Lifrarpylsa
Blóðmör
Franskur camenbert
Hvað getur gerst ef ólétta konu skortir fólinsýru á meðgöngu varðandi ófætt barn hennar?
Vitræn skerðing
Heilaleysi og klofinn hryggur
Downs heilkenni
Fetal alcohol syndrome
Hvenær má fyrst gefa barni venjulegan hafragraut?
4 mánaða
6 mánaða
9 mánaða
12 mánaða
Hvenær má fyrst gefa barni egg og fisk?
Upp úr 6 mánaða aldri
Upp úr 9 mánaða aldri
Upp úr 12 mánaða aldri
Upp úr 18 mánaða aldri
Hvað á ekki við um fæðuráðleggingar ef gefa á barni fasta fæðu um 4 mánaða aldurinn?
Að gefa því brjóstið á undan matnum
Að velja milda ávexti og grænmeti og/eða ungbarnagrauta
Að setja fitu út á matinn t.d. olíu eða ósaltað smjör
Að mikilvægt sé að bíða með að gefa barninu hnetusmjör vegna ofnæmishættu
Hvenær má fyrst gefa barni appelsínur og tómata?
4 mánaða
6 mánaða
9 mánaða
12 mánaða
Fyrir 12 mánaða aldurinn mega börn fá:
Rúsínur, rauðrófur, spínat og sesamfræ
Hunang og epla- og appelsínusafa
Léttmjólk, skyr og fjörmjólk
Nýmjólk út á grauta
Í spretthlaupum nota íþróttamenn einkum.....
Kolvetni sem orkugjafa án súrefnis ásamt ATP og fosfórkreatíni
Kolvetni sem orkugjafa með súrefni
Fitu sem orkugjafa
Ketonkroppa sem orkugjafa
Mjólkursýra.......
Myndast þegar orka er búin til úr kolvetnum án súrefnis
Myndast þegar orka er búin til úr kolvetnum með súrefni
Myndast þegar orka er búin til úr fitu
Eykur vöðvastyrk
Eitt af eftirtöldu er rangt:
Kolvetni gefa fljóta orku en hún klárast hratt
Fita gefur hæga orku en nóg er til af henni
Aðeins er hægt að búa til orku úr kolvetnum í hvatberum frumnanna
Við mæði er líkaminn helst að nota kolvetni sem orkugjafa
Fyrir keppni......
Ætti helst að borða mikið af fitu
Ætti helst að borða mikið af próteinum
Ætti helst að borða mikið af trefjum
Ætti helst að borða einföld kolvetni
Eftir keppni ætti að......
Að borða eingöngu prótein og fitu til að ná upp birgðum
Aðeins að borða kolvetni til að ná upp orkunni sem tapaðist
Borða prótein og holl kolvetni til að stuðla að endurheimt
Aðeins að drekka íþróttadrykki
