wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Fyrsta nútíma styrjöldin

Total questions: 31

Worksheet time: 16mins

Name
Class
Date
1.

Á hvaða árum stóð fyrri heimstyrjöldin yfir?

a)

1912-1918

b)

1914-1918

c)

1939-1944

d)

1914-1923

2.

Hvaða vopn voru notuð í WW1 sem aldrei fyrr höfðu verið notuð?

a)

Eiturgas, skriðdrekar, eldvörpur og flugvélar

b)

Hríðskotabyssur og drónar

c)

Skriðdrekar og byssustingar

d)

Skriðdrekar og kjarnorkusprengja

3.

Af hverju þurftu Bretar að nota auglýsingar til að fá unga menn í herinn

a)

Af því þeir vildu ekki gamla hermenn

b)

Þeir vildu passa uppá að konur myndu ekki sækjast eftir að komast í herinn

c)

Vegna þess að á Bretlandi var ekki herskylda

d)

Af því þeir vildu alls ekki fá útlendinga í herinn

4.

Hvar átti skotgrafarhernaðurinn sér stað?

a)

Á Vesturvígstöðvunum

b)

Á Austurvígstöðvunum

c)

Í Bandaríkjunum

d)

Í Afríku

5.

Hvað hét bandalag Þýskalands, Austurríkis-Ungverjalands, Ítalíu og Tyrklands

a)

Bandalagið

b)

Miðveldin

c)

Stórveldisbandalagið

d)

Skotmannabandalagið

6.

Hvað kallaðist svæðið á milli skotgrafanna?

a)

Átakasvæðið

b)

Einskismannsland

c)

Somme

d)

Ermasundssvæðið

7.

Af hverju réðust Þjóðverjar inn í Belgíu?

a)

Belgar drápu kanslara Þýskalands

b)

Belgar hernumu landsvæði sem Þýskaland átti

c)

Þjóðverjar voru að styðja Rússa

d)

Þjóðverjar ætluðu að ráðast á Frakkland í gegnum landamæri Belgíu

8.

Hverju voru franskir hermenn að mótmæla þegar þeir hófu að jarma í skotgröfunum

a)

hversu lélegur maturinn var

b)

hversu sjaldan pósturinn kom í skotgrafirnar

c)

hversu auðveldlega yfirmönnum fannst að senda þá útá einskinsmannsland

d)

vildu að frakkar og þjóðverjar myndu halda upp á jólin saman

9.

Hvað er sprengjulost?

a)

Tíminn á milli sprengjuárása

b)

Geðrænn kvilli sem hermenn fá í stríðum

c)

Þegar herinn týnir meirihlutanum af sprengjunum sínum

d)

Þegar verksmiðjur endurnýta járn til að búa til sprengjur

10.

Af hverju var WW1 fyrsta nútíma styrjöldin

a)

Í fyrsta sinn börðust iðnvæddar þjóðir sín á milli og framleiddu gífurlegt magn af vopnum

b)

Í fyrsta skiptið tóku Þjóðverjar þátt í stríði

c)

Af því að hermenn notuðu ekki skotgrafir

d)

Af því að nasistar voru í fyrsta skiptið að taka þátt í stríði

11.

Hvað er vígbúnaður?

a)

Þegar lönd gera sig tilbúin fyrir stríð með þvi að búa til vopn og þjálfa hermenn

b)

Þegar lönd fækka hermönnum en fjölga vopnum

c)

Þegar lönd selja hvort öðru mikið af vígbúnaði

d)

þegar að bandalög ákveða að ráðast saman inn í óvinaríki

12.

Hvaða ár lést Franz Ferdinand

a)

1912

b)

1934

c)

1914

d)

1984

13.

Hvað hét 19 ára drengurinn sem drap Franz Ferdinand

a)

Sophie Ferdinand

b)

Gavrilo Bambino

c)

Khudadad Khan

d)

Gavrilo Princip

14.

Hvað er Viktoríukross?

a)

Stærsta byssan sem notuð var í WW1

b)

mesta heiðursmerki breska hersins

c)

orða sem franskir hermenn fá þegar þeir slasast

d)

Krosssaumur sem saumaður var í alla hermannajakka bresku hermannanna

15.

Hvað þýðir hugtakið tilræði?

a)

að neita að fara í stríð

b)

að mótmæla

c)

árás á mikilvæga manneskju

d)

að þjóð berst fyrir því að eiga eigið þjóðríki

16.

Hvað kallast það þegar að stjórnvöld stjórna því hvað kemur fram í fréttum

a)

Fréttaskoðun

b)

Ritskoðun

c)

Skrifstjórnun

d)

Fréttastjóri

17.

Hvað kallaðist friðarsamningurinn sem undirritaður var eftir WW1

a)

Evrópski friðarsamningurinn

b)

Þjóðarbandalags samningurinn

c)

Versalasamningurinn

d)

Taparasamningurinn

18.

Hvaða bandalag vann stríðið?

a)

Bandamenn

b)

Miðveldin

c)

Afríkuveldin

d)

Bandaríkin

19.

Hvað hét breska farþegaskipið sem sökk og varð til þess að Bandaríkjamenn komu inn í stríðið ?

a)

Lusitania

b)

Titanic

c)

Geysir

d)

Le Cruizshippa

20.

Hvernig breytti stríðið lífi kvenna?

a)

Þær fóru að eignast færri börn

b)

Þær fóru að vinna utan heimilis

c)

Þær lærðu allskonar útlenskar uppskriftir

d)

Þær kynntust fullt af tyrkneskum hermönnum

21.

Hvað kallast það þegar að veggspjöld og auglýsingar eru notaðar til að breyta skoðunum fólks?

a)

Ritskoðun

b)

Meðvirkni

c)

Áróður

d)

Fjölmiðlar

22.

Í hvaða landi er Versalahöll?

a)

Frakklandi

b)

Þýskalandi

c)

Austuríki

d)

Bretlandi

23.

Versalasamningurinn er oft talinn hafa verið frekar ósanngjarn. Gagnvart hverjum var hann ósanngjarn?

a)

Bretum

b)

Frökkum

c)

Þjóðverjum

d)

Tyrkjum

24.

Hvert var markmiðið með Þjóðarbandalaginu?

a)

koma í veg fyrir stríð

b)

Búa til eitt stórt evrópskt ríki

c)

banna múslimum að flytja til Bandaríkjanna

d)

Taka við stríðsskaðabótum frá Þýskalandi

25.

Hvaða ríki voru búin til úr Austuríki-Ungverjalandi?

a)

Tékkóslóvakía, Austuríki, Ungverjaland, Júgóslavía

b)

Ungverjaland og Austuríki

c)

Austuríki og Þýskaland

d)

Austuríki, júgóslavía og Tékkland.

26.

Í hvaða borg var Franz Ferdinand myrtur

a)

Berlín

b)

Búlgaríu

c)

Sarajevo

d)

Sútan

27.

Af hverju náði morðingi Franz Ferdinand ekki að drepa sig?

a)

Af því að hann gleymdi eitrinu heima

b)

Af því að skotin voru búin í byssunni

c)

Af því að eitrið var ekki nógu sterkt

d)

Hann skaut sig en lést ekki af áverkunum

28.

Af hverju byrjaði Afríka að taka þátt í stríðinu?

a)

Af því að þeir vildu vinna landsvæði í Evrópu

b)

Af því að prinsinn í Egyptalandi var myrtur

c)

Af því þeim langaði að arðræna Evrópu

d)

Af því að þeir fylgdu nýlenduherrum sínum

29.

Af hverju réðust Þjóðverjar inn í Frakkland?

a)

Þeir vildu vinna Frakkland undir sig áður en þeir færu í stríð við Rússa

b)

Þeir vildu fá vínhéraðið Champangie

c)

Þeir voru að mótmæla Versalasamningnum

d)

Þeir vildu sýna mátt sinn

30.

Hvað þýðir það að ríki sé hlutlaust?

a)

Ríki tekur ekki þátt í stríði

b)

Ríkið býr ekki yfir neinum vopnum

c)

Ríkið er óiðnvætt

d)

Ríkið er fátækt

31.

Hvaða land þurfti að greiða himinháar stríðsbætur í lok stríðsins?

a)

Austuríki-Ungverjaland

b)

Rússland

c)

Tyrkland

d)

Þýskaland

Similar Resources on Wayground