wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Innræn öfl

Total questions: 20

Worksheet time: 10mins

Name
Class
Date
1.

Heitt og seigfljótandi berg undir miklum þrýstingi. Hverju er verið að lýsa?

a)

Jarðskorpunni

b)

Möttulinum

c)

Innri kjarna Jarðarinnar

d)

Hraunkviku

2.

Hvernig jarðflekamót eru á Íslandi?

a)

Hjáreksbelti

b)

Fráreksbelti

c)

Samreksbelti

d)

Heitur reitur

3.

Af hverju er Ísland eini hluti Atlantshafshryggsins sem stendur upp úr sjó?

a)

Af því að jarðskorpuflekarnir færast hraðar í sundur hér

b)

Af því að sjávarrof er minna hér

c)

Af því að hér er líka heitur reitur

d)

Af því að hér klofnar hryggurinn í tvennt

4.

Hvaða tveir jarðflekar mætast þar sem Himalayafjöllin hafa myndast?

a)

Asíuflekinn og Evrópuflekinn

b)

Indó-Ástralíuflekinn og Asíuflekinn

c)

Afríkuflekinn og Evrasíuflekinn

d)

Evrasíuflekinn og Indlandsflekinn

5.

Hvað rekur Norður-Ameríkuflekinn og Evrasíuflekkinn hratt hvor frá öðrum?

a)

2-3 millimetra á ári

b)

2-3 sentímetra á ári

c)

2-3 desímetra á ári

d)

2-3 metra á ári

6.

Hvað eru fellingafjöll?

a)

Fjöll sem myndast í eldgosum

b)

Fjöll sem myndast vegna jökulrofs

c)

Fjöll sem myndast vegna rofs vatns og vinda

d)

Fjöll sem myndast þegar jarðskorpuflekar rekast saman

7.

Úr hvernig bergi er Ísland að mestu?

a)

Storkubergi

b)

Setbergi

c)

Myndbreyttu bergi

d)

Djúpbergi

8.

Hraun sem er seigfljótandi verður mjög úfið þegar það storknar. Hvað kallast svoleiðis hraun?

a)

Alpahraun

b)

Kaplahraun

c)

Apalhraun

d)

Góu hraun

9.

Í hvaða flokka skiptast gosefni

a)

Kolsýru, sykur, bragðefni og vatn

b)

Gas, gjósku og hraun

c)

Ösku, vikur og gjall

d)

Helluhraun, apalhraun og bólstraberg

10.

Hvar er elsta bergið á Íslandi?

a)

Á Norðurlandi og Suðurlandi

b)

Á Austfjörðum og Vestfjörðum

c)

Í Grímsey og Kolbeinsey

d)

Í Surtsey og á Heimaey

11.

Hvað er talið að margir Íslendingar hafi dáið í Skaftáreldum á 18. öld?

a)

Næstum því helmingur

b)

Um 20.000 manns

c)

Um það bil einn fimmti

d)

Næstum því 10%

12.

Hvernig myndast móberg?

a)

Þegar gýs undir jöklum

b)

Þegar gýs undir sjó

c)

Þegar gosefnin eru þykk og súr

d)

Þegar gosefnin eru þunn og basísk

13.

Til hvaða ráðs var gripið í Heimaeyjargosinu til að koma í veg fyrir að höfnin fylltist af hrauni?

a)

Hrauninu var mokað úr höfninni jafn óðum

b)

Byggðir voru varnargarðar til að beina hrauninu annað

c)

Vatni var sprautað á hraunið til að kæla það

d)

Fólk bað til guðs að stöðva hraunið

14.

Gosið í Eyjafjallajökli 2010 varð þekkt um allan heim. Hvers vegna?

a)

Það var stærsta gos sem hafði orðið í heiminum í meira en öld

b)

Askan var svo fíngerð að hún dreifðist yfir Evrópu og stöðvaði flugumferð

c)

Það var mikið sprengigos sem olli mjög miklu tjóni og margir dóu

d)

Af því að það var svo erfitt fyrir útlendinga að bera orðið Eyjafjallajökull fram

15.

Hvað er mikill munur á jarðskjálfta sem er 9 á richter kvarða og skjálfta sem er 7 á richter kvarða?

a)

Skjálfti upp á 9 er tíu sinnum stærri en skjálfti upp á 7

b)

Skjálfti upp á 9 er tólf sinnum stærri en skjálfti upp á 7

c)

Skjálfti upp á 9 er hundrað sinnum stærri en skjálfti upp á 7

d)

Skjálfti upp á 9 er þúsund sinnum stærri en skjálfti upp á 7

16.

Hvar verða flestir jarðskjálftar í heimi?

a)

Í kringum Kyrrahafið

b)

Í Himalaya fjöllunum

c)

Á Íslandi

d)

Í Alpafjöllunum

17.

Hve margir af tíu stærstu jarðskjálftum á jörðinni frá 1900 hafa orðið á svæðinu í kringum Kyrrahafið?

a)

7

b)

8

c)

9

d)

10

18.

Stórir jarðskjálftar sem verða út á sjó geta valdið gríðarstórum flóðbylgjum sem ganga á land. Hvað eru þær kallaðar?

a)

Pterodactyl

b)

Hieroglyph

c)

Tsunami

d)

Shashimi

19.

Hver þessara fjallgarða er elstur?

a)

Appalachiafjöll

b)

Pýreneafjöll

c)

Kákasusfjöll

d)

Andesfjöll

20.

Hvar eru Suður-Alparnir?

a)

Á Spáni

b)

Í Norður-Afríku

c)

Í Ástralíu

d)

Á Nýja Sjálandi