wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Kafli 1 - Skattar

Total questions: 17

Worksheet time: 12mins

Name
Class
Date
1.

Skattar


Af hverju greiða einstaklingar og fyrirtæki skatta?

a)

Til að fjármagna opinbera þjónustu eins og vegi, heilbrigðisþjónustu, skóla, löggæslu og fleira

b)

Af því að það er skylda samkvæmt lögum.

c)

Til þess að einstaklingar og fyrirtæki eyði ekki öllum peningunum sínum

d)

Til að safna fyrir eftirlaunaárunum

2.

Skattar


Hverjir eru þrír algengustu skattar sem einstaklingar greiða?

a)

Tekjuskattur, fjármagnstekjuskattur og virðisaukaskattur

b)

Tekjuskattur, fjármagnstekjuskattur og söluskattur

c)

Tekjuskattur, skemmtanaskattur og virðisaukaskattur

d)

Erfðafjárskattur, fjármagnstekjuskattur og virðisaukaskattur

3.

Skattar


Hvað er tekjuskattur?

a)

Skattur á tekjur ríkissjóðs

b)

Skattur á smásölu í verslunum

c)

Tekjuskattur er skattur á atvinnutekjur einstak­linga og fyrirtækja

d)

Skattur á alla ferðamenn

4.

Skattar


Hvert er tekjuskattur greiddur?

a)

Tekjuskattur er greiddur eingöngu í ríkissjóð

b)

Tekjuskattur er greiddur eingöngu til sveitarfélaga

c)

Tekjuskattur er greiddur til starfsmannafélaga ríkisskattstjóra

d)

Tekju­skattur samanstendur af skatti til ríkisins og út­svari til þess sveitarfélags sem einstak­lingur er búsettur í

5.

Skattar


Hvor fullyrðingin er rétt?

a)

Tekjuskattur er venjulega reiknaður sem margfeldi skatthlutfalls og skattskyldra tekna

b)

Tekjuskattur er venjulega reiknaður sem margfeldi skatthlutfalls og hreinna eigna

(eignir – skuldir)

6.

Skattar


Hvað er fjármagnstekjuskattur?

a)

Skattur sem lagður er á eignatekjur einstak­linga eins og t.d. vexti af banka­reikningum, arðgreiðslur af hlutabréfum eða sölu­hagnað

b)

Skattur sem er lagður á eignir í eigu einstaklinga

c)

Skattur sem er lagður á skuldir einstaklinga

d)

Skattur á banka og fjármálastofnanir

7.

Skattar


Hvað er virðisaukaskattur?

a)

Skattur á söluhagnað eigna, þ.e. virðisaukanum sem myndast við sölu

b)

Skattur sem er lagður á seljendur vöru og þjónustu

c)

Neysluskattur sem er greiddur af verði vöru og þjónustu

d)

Skattur á vegi og samgöngur

8.

Skattar


Hver er munurinn á beinum og óbeinum sköttum?

a)

Beinn skattur er greiddur af skattgreiðanda til ríkisskattstjóra. Óbeinn skattur er hluti af söluverði vöru og þjónustu og ber seljanda að skila skattinum til ríkisskattstjóra

b)

Beinn skattur er greiddur af skattgreiðanda til ríkisskattstjóra. Óbeinn skattur er greiddur til Islands.is og þaðan í ríkissjóð

c)

Beinn skattur er greiddur í ríkissjóð en óbeinir skattar til sveitarfélaga

d)

Beinir skattar eru greiddir af einstaklingum en óbeinir skattar af fyrirtækjum og stofnunum

9.

Skattar


Hvor eftirtalinna fullyrðinga er rétt?

a)

Virðisaukaskattur er beinn skattur. Tekjuskattur er óbeinn skattur

b)

Tekjuskattur er beinn skattur. Virðisaukaskattur er óbeinn skattur

10.

Skattar


Hvað eru einstaklingar gamlir þegar þeir byrja að greiða tekjuskatt?

a)

Það eru engin aldursmörk. Börn 15 ára og yngri greiða tekjuskatt samkvæmt sérstöku skattþrepi ef tekjur fara yfir frítekjumark en einstaklingar greiða tekjuskatt eins og fullorðnir frá 16 ára aldri

b)

Frá 6 ára aldri

c)

Frá 16 ára aldri

d)

Frá 18 ára aldri

11.

Skattar


Hvenær er tekjuskattur greiddur?

a)

ekjuskattur er greiddur eftir á og gerður upp þegar upplýsingar um tekjur ársins liggja fyrir

b)

Tekjuskattur er greiddur sem hluti af söluverði vöru og þjónustu

c)

Tekjuskattur er greiddur árlega þegar fjárlagafrumvarp hefur verið samþykkt af Alþingi

d)

Tekjuskattur er dreginn af launum og er staðgreiddur í ríkissjóð

12.

Skattar


Er staðgreiðsla tekjuskatts endanlegt uppgjör skattsins?

a)

Nei, ríkisskattstjóri reiknar endanlegan tekjuskatt þegar tekjur ársins liggja fyrir samkvæmt skattframtali

b)

Já, launagreiðanda bera að draga skattinn frá launum og greiða til ríkissjóðs

13.

Skattar


Hvað er skattframtal?

a)

Skýrsla sem einstaklingar taka saman með upplýsingum um allar skattgreiðslur á liðnu ári

b)

Kvittun fyrir greiðslu skatta á liðnu ári

c)

Matseðill í mötuneyti starfsmanna ríkisskattstjóra

d)

Skýrsla sem einstaklingar skila til ríkisskattstjóra með upplýsingum um tekjur á liðnu ári, og eignir og skuldir í árslok

14.

Skattar


Hvað gerist ef skattframtal sýnir að einstaklingur hefur of- eða vangreitt tekjuskatt á liðnu ári?

a)

Ofgreiddir skattar eru þeir endurgreiddir í júlí árið eftir en vangreiddir skattar eru innheimtir á tímabilinu júlí til desember

b)

Ofgreiddir skattar koma til frádráttar á næsta ári en vangreiddir skattar eru innheimtir á tímabilinu júlí til desember

c)

Ofgreiddir skattar eru tapað fé en vangreiddir skattar eru innheimtir strax

d)

Ofgreiddir skattar renna til góðgerðarmála en þeir sem skulda skatta fara strax í fangelsi

15.

Skattar


Hvar er persónuafsláttur?

a)

Afsláttur á mat og nauðsynjum í matvöruverslunum

b)

Skattaafsláttur sem allir fá og tryggir að laun upp að ákveðnu marki eru skattfrjáls

c)

Skattaafsláttur er veittur er til einstaklinga sem eru dregnir út í skattalottóinu

d)

Skattaafsláttur sem veittur er til einstaklinga með tekjur undir viðmiðunarlaunum og tryggir að laun upp að ákveðnu marki eru skattfrjáls

16.

Skattar


Hvor þessara fullyrðinga er rétt?

a)

Persónuafsláttur er föst tala á mánuði og safnast upp á árinu ef afslátturinn er ekki nýttur einstaka mánuði

b)

Persónuafsláttur er föst tala á mánuði og gildir bara fyrir laun í viðkomandi mánuði

17.

Skattar


Af hverju þurfa krakkar og unglingar sem vinna bara á sumrin ekki að greiða tekjuskatt?

a)

Af því launagreiðandi borgar skattinn fyrir skólakrakka

b)

Af því pabbi og mamma borga skattinn fyrir börnin sín

c)

Af því þau eiga uppsafnaðan persónuafslátt frá tímabilum sem þau fengu ekki laun

d)

Af því krakkar í skóla eru undanþegin persónuafslætti.