wayground logo

Free Printable Worksheets

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Stríðsárin á Íslandi: 5. kafli - Ástandið

Total questions: 16

Worksheet time: 8mins

Name
Class
Date
1.

Hvað var "Ástandið"?

a)

Orð sem var notað yfir hernámið

b)

Orð sem var notað yfir samband íslenskra kvenna við hermenn

c)

Orð sem var notað yfir atvinnuleysið fyrir stríð

d)

Orð sem var notað yfir heimsstyrjöldina síðari

2.

Á hvaða aldri voru konurnar sem lögreglan rannsakaði vegna sambands þeirra við hermenn?

a)

Fullorðinsaldri

b)

18 ára og eldri

c)

16 til 60 ára

d)

12 til 61 árs

3.

Hvaða embættismaður hvatti til þess að yfirvöld stöðvuðu "vændi" meðal íslenskra kvenna?

a)

Biskup Íslands

b)

Dómsmálaráðherra

c)

Landlæknir

d)

Lögreglustjórinn í Reykjavík

4.

Hver þessara embættismanna í seinni heimsstyrjöldinni var kona?

a)

Formaður ástandsnefndarinnar

b)

Forsætisráðherra

c)

Lögreglustjórinn í Reykjavík

d)

Enginn kona var embættismaður á þessum tíma

5.

Hvað gerði lögreglukonan sem var ráðin til að kanna lauslæti kvenna til að bregðast við ástandinu. Meira en eitt rétt svar.

a)

Lét athuga hvort ungar stúlkur væru enn með meyjarhaft

b)

Njósnaði um stúlkur sem gunaðar voru um samband við hermenn

c)

Lét senda stúlkur á upptökuheimili

d)

Aðstoðaði fjölskyldur við að sjá um dætur sínar

6.

Hversu mörg staðfest tilvik eru um raunverulegt vændi í "ástandinu"?

a)

Engin

b)

150

c)

500

d)

Yfir þúsund

7.

Börn sem fæddust á Íslandi á árunum 1941 til 1945 eru mörg Hermannsdóttir, Erlendsson, Hansdóttir eða Karlsson. Í hvaða tilvikum voru þessi föðurnöfn notuð? Meira en eitt svar.

a)

Þegar feðurnir hétu Hermann, Erlendur, Hans eða Karl.

b)

Þegar ekki var víst um faðerni barnsins.

c)

Þegar faðir barnsins var erlendur hermaður sem ekki vildi gangast við barninu.

d)

Menn með þessi nöfn voru óvenju frjósamir á þessum árum.

8.

Hvert var kynjahlutfallið á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni?

a)

Það var jafnt

b)

Það voru 1,5 karlar á móti hverri konu

c)

Það voru 2 karlar á móti hverri konu

d)

Það voru 3 karlar á móti hverri konu

9.

Hvað var gert við þær stúlkur sem dæmdar voru í vist á Kleppjárnsreykjum ef þær reyndu að flýja?

a)

Þær voru settar í einangrun

b)

Þær voru skammaðar

c)

Þær voru hýddar

d)

Þær voru sendar í útrýmingarbúðir

10.

Menntaskólastúlkur sem áttu í sambandi við hermenn (jafnvel bara að mæta á dansleik) gátu átt von á hverju ef upp komst? Fleira en eitt svar.

a)

Að vera kallaðar kanamellur

b)

Að vera reknar úr skóla

c)

Að nöfn þeirra væru birt í blöðum

d)

Að vera snoðaðar

11.

Kennslubókin er gefin út árið 2000. En hvaða ár voru gögn Jóhönnu Knudsen, lögreglukonunnar sem rannsakaði "ástandið" gerð opinber?

a)

1998

b)

2008

c)

2012

d)

2018

12.

Fyrir hvað voru stúlkur dæmdar í vist á Kleppjárnsreykjum?

a)

Að eiga samskipti við hermenn

b)

Að hafa átt í kynferðislegu sambandi við hermann

c)

Að hafa stundað vændi

d)

Að hafa framið afbrot, s.s. rán eða ofbeldisglæp

13.

Hvað voru konur sem voru í "ástandinu" kallaðar? Fleira en eitt rétt svar.

a)

Vændiskonur

b)

Ástandsstúlkur

c)

Gleðikonur

d)

Kanamellur

14.

Hverjir sátu í ástandsnefndinni?

a)

Þrír karlmenn, þar á meðal Vilmundur Jónsson landlæknir

b)

Þrír karlmenn, þar á meðal Sigurbjörn Einarsson biskup Íslands

c)

Þrír karlmenn, þar á meðal Hermann Jónsson forsætisráðherra

d)

Þrír karlmenn, þar á meðal Agnar Kofoed Hansen lögreglustjóri

15.

Hvað nægði til að stúlkur undir lögaldri voru kallaðar í yfirheyrslu hjá Jóhönnu Hansen vegna lauslætis?

a)

Að þær hefðu stundað kynlíf með hermanni

b)

Að þær hefðu orðið óléttar eftir hermann

c)

Að orðrómur væri um að þær væru í samskiptum við hermann

d)

Að þær hefðu mætt á dansleik hjá hernum

16.

Hvaða áhrif hefur það á kaflann um "ástandið" í kennslubókinni að gögn Jóhönnu Hansen voru ekki orðin opinber þegar hún er skrifuð?

a)

Engin áhrif

b)

Kaflinn dregur upp verri mynd af "ástandinu" en raunin var

c)

Höfundur kaflans veit ekki um verstu hliðar ástandsins