Wayground logo

Free Printable Worksheets

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

3. kafli Fyrstu skref í fjármálum

Total questions: 10

Worksheet time: 8mins

Name
Class
Date
1.

Hvað er að vera fjárhagslega sjálfstæður?

a)

Að senda alla reikninga til mömmu og pabba

b)

Að eiga góðan bankareikning og taka lán fyrir öllum útgjöldum.

c)

Að stjórna eigin fjármálum, eiga fyrir útgjöldum og geta lagt fyrir.

d)

Að kaupa allt sem mann langar í og hafa áhyggjur seinna.

2.

Af hverju er ódýrara að kaupa eignir með sparnaði frekar en með lántöku?

a)

Ef þú sparar færðu innlánsvexti og getur eignast hlutinn án þess að taka lán en ef þú tekur lán þarftu að borga útlánsvexti ofan á lánið.

b)

Ef þú sparar færðu útlánsvexti og getur eignast hlutinn án þess að taka lán en ef þú tekur lán þarftu að borga innlánsvexti ofan á lánið.

c)

Það er ekki ódýrara.

d)

Lán er alltaf besti kosturinn.

3.

Hvað er varasjóður?

a)

Sjóður af vörum.

b)

Sjóður sem hægt er að fá lán hjá í banka.

c)

Sjóður sem einhver annar á og þú getur fengið lánað hjá.

d)

Sjóður sem þú átt til að mæta óvæntum fjárhagslegum áföllum.

4.

Af hverju er betra að safna heldur en taka lán?

a)

Þá er varan ódýrari heldur en ef þú þarft að borga vexti ofan á lánið.

b)

Það er ekki betra. Ef þú tekur lán getur þú tekið hlutinn strax í notkun.

5.

Sparnaðarformið sem spurt er um hér tekur tiltölulega stuttan tíma að byggja upp og/eða þarf að vera aðgengilegur eftir stuttan tíma. Hér er átt við

a)

Skammtímasparnað

b)

Langtímasparnað

c)

Eftirlaunasparnað

d)

Viðbótarlífeyrissparnað

6.

Þetta sparnaðarform er gott þegar safna þarf fyrir eignum sem kosta mikið og tekur langan tíma safna fyrir. Dæmi um slíkar eignir er fasteign og bíll. Hér er átt við

a)

Skammtímasparnað

b)

Langtímasparnað

c)

Eftirlaunasparnað

d)

Viðbótarlífeyrissparnað

7.

Tilgangurinn með þessum sparnaði er að byggja upp sjóð til að greiða laun þegar látið er að af störfum vegna aldurs.

a)

Skammtímasparnaður

b)

Langtímasparnaður

c)

Eftirlaunasparnaður

d)

Varasjóður

8.

Viðbótarlífeyrissjóður er valfrjáls en er ákveðin kjarabót.

a)

Rétt

b)

Rangt

9.

Af hverju er gott að safna fyrir útborgun í íbúð?

4 lines
10.

Merktu við það sem er rétt;

a)

Lántökur auka kostnað

b)

Gott er að spara fyrir hlutum

c)

Gott er að gera fjárhagsáætlun út frá tekjum og útgjöldum

d)

Að halda fjárhagsáætlun eykur fjárhagslegt sjálfstæði