WorksheetsDagur íslenzkrar tungu 2022
Total questions: 24
Worksheet time: 12mins
Það er rétt að segja
Mér hlakkar til
Ég hlakka til
Mig hlakkar til
Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á afmælisdegi
Halldórs Laxness
Þórbergs Þórðarsonar
Jónasar Hallgrímssonar
Jóns Sigurðssonar
Hvaða málaætt tilheyrir íslenskan?
Rómönsku málaættinni
Slavnesku málaættinni
Úrölsku málaættinni
Germönsku málaættinni
Hvað kallast rúnastafrófið sem var notað af víkingum til forna?
Rúnaróf
Fúþark
Fuglarþrugl
Naflakrafl
Jónas Hallgrímsson bjó til mörg nýyrði, þar á meðal orðið slyppifengur. Hvað þýðir það?
Klaufskur
Latur
Ríkur
Gáfaður
Það sem gerir íslensku einstaka er
að hún hefur breyst lítið og við getum lesið gamla texta
hún er náskyld japönsku
það er auðvelt að læra hana
hún er með styttra stafróf en önnur tungumál
Hvert eftirfarandi orða er ekki til?
kraðak
einurð
kotroskinn
lúfus
Settu nafnið Njörður í þágufall
Njarðar
Njörðs
Nirði
Njörð
Af tungumálunum sem eru töluð á Norðurlöndum stendur íslenska næst tungumáli sem var talað til forna. Hvaða tungumál er það?
fornenska
fornnorræna
fornkeltneska
fornþýska
Vilji fólk nefna barnið sitt nafni sem telst vera ,,nýtt" nafn þarf að fá leyfi fyrir því hjá...
Árnastofnun
Mannanafnanefnd
Íslenskumála-ráðherra
Nefnd íslenskrar nafnaþróunar
Á hvaða peningaseðli er mynd af Jónasi Hallgrímssyni?
500 króna seðlinum
2000 króna seðlinum
5000 króna seðlinum
10.000 króna seðlinum
Elstu textar sem hafa varðveist á íslensku voru skrifaðir
í kringum árið 300
í kringum árið 750
í kringum árið 1100
í kringum árið 1500
Eitt þekktasta íslenska fornritið er
Snorra-Edda
Jóns saga forvitna
Hlíðarendaannáll
Kviður Hómers
Árið 2013 var efnt til kosningar um fallegasta íslenska orðið. Hvaða orð vann keppnina?
Bergmál
Hugfanginn
Ljósmóðir
Spékoppur
Sama ár, 2013, var einnig haldin kosning um ljótasta íslenska orðið. Hvaða orð vann þá keppni?
Gardína
Líkþorn
Hrææta
Geirvarta
Oft hafa fyrirbæri fleira en eitt nafn á íslensku. Hér sjáið þið svan. En annað orð yfir þennan fugl er
álft
orri
prófastur
blængur
Hvort dæmið hér að neðan er málfræðilega rétt?
Hann var ekki að skilja stöðu sína
Hún skildi ekki stöðu sína
Orð sem er notað yfir veturgamla kind var notað yfir farsíma fyrst eftir að þeir komu til sögunnar. Hvaða orð er það?
símalingur
gemsi
bandi
spjallari
Hvað er tökuorð?
Gamalt íslenskt orð sem fær nýja merkingu
Erlent orð sem er tekið inn í tungumálið og verður hluti af því
Orð sem þýddi einu sinni eitt en þýðir núna annað
Orð sem er svo ljótt að það er ákveðið að taka það úr tungumálinu
Það sem fólk óttast mest núna, varðandi íslenskuna, er
að hún sé svo leiðinleg að enginn vilji tala hana
að hún deyi út vegna erlendra áhrifa
að öll ný orð í íslenskunni séu alltof lík dönsku
að gamalt fólk og ungt fólk skilji ekki lengur hvert annað
Hvers vegna er mikilvægt að búa til nýyrði á íslensku yfir ný fyrirbæri, t.d. sem tengjast tækni?
til að koma í veg fyrir að erlend orð komist í íslenskuna
til að uppfylla evrópsk skilyrði um tæknitengd orð
svo það sé hægt að tala um hluti án þess að útlendingar skilji mann
af því gamalt fólk elskar að passa upp á íslenskuna
Hvert eftirfarandi orða er ekki samheiti orðsins skemmtun
dægrastytting
upplyfting
rall
snudd
Íslenska orðið fyrir pizzu er
Flatbaka
Brauðkaka
Pítsa
Ítölsk pönnukaka
Íslensku mánaðarheitin: á eftir Þorra kemur
Góa
Harpa
Gormánuður
Ýlir
