Wayground logo

Free Printable Worksheets

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Tímapróf 10b

Total questions: 13

Worksheet time: 7mins

Name
Class
Date
1.

Hvað er aðal viðfangsefni félagsvísinda?

a)

Hlutverk samfélaga

b)

Hlutverk þjóðfélaga

c)

Maðurinn og samskipti milli manna

d)

Allt í öllum heiminum

2.

Hver þessara hópa myndar þjóðfélag?

a)

Kristnir

b)

Íslendingar

c)

Akureyringar

d)

Nemendur Síðuskóla

3.

Hvað skilgreinir samfélag?

a)

Hópur fólks í skipulögðum félagsskap sem hefur samskipti hvert við annað

b)

Hópur fólks sem býr á sama svæði og talar sama tungumál

c)

Samtök margra félagasamtaka

d)

Samtök fólks um ákveðin málefni

4.

Hvað þýðir "enginn er eyland"

a)

Að manneskjan er ekki eyja í hafinu

b)

Að manneskjan þurfi félagsskap við annað fólk

c)

Að enginn er eins

d)

Að manneskja geti ekki átt land

5.

Hvað er sjálfsmynd skv félagsvísindunum?

a)

Mynd sem þú tekur af sjálfum þér

b)

Þín eigin hugmynd um hvernig samfélög virka

c)

Allar hugmyndir sem þú hefur um það hver þú ert

d)

Þær hugmyndir sem aðrir hafa um þig

6.

Á hvaða aldursskeiði mótast sjálfsmyndin mest?

a)

Á barnsaldri

b)

Á unglingsárunum

c)

Yngri fullorðnum (20-40 ára)

d)

Eldra fullorðna fólkinu (40+)

7.

Hvað eru gildi?

a)

Hugmyndir um hvað sé æskilegt og gott

b)

Mælikvarðar sem samfélög eru mæld á

c)

Skráðar og óskráðar reglur um hvernig á að haga sér

d)

Það sem stýrir því hvað við hugsum

8.

Hvað er félagsmótun?

a)

Þau áhrif sem einstaklingar hafa á samfélagið

b)

Hvernig stjórnmálamenn móta samfélag

c)

Þau áhrif sem samfélagið hefur á einstaklinga

d)

Reglur samfélagsins

9.

Þörfin fyrir að eignast alltaf meira og meira kallast...

a)

Formleg umbun

b)

Heimsmynd

c)

Óformleg viðmið

d)

Efnishyggja

10.

Í félagslegu taumhaldi er bros dæmi um...

a)

Óformleg viðgjöld

b)

Formleg viðgjöld

c)

Óformlega umbun

d)

Formlega umbun

11.

Aðferðir sem notaðar eru til að fá okkur til að fylgja viðmiðum kallast...

a)

Hlýðnihyggja

b)

Markaðsstjórnun

c)

Félagslegt taumhald

d)

Félagsleg umbun

12.

Allar reglur hvort sem þær eru skráðar eða óskráðar kallast...

a)

Félagslegar skilyrðingar

b)

Óformlegt taumhald

c)

Félagslegt taumhald

d)

Viðmið

13.

Skólareglur eru óformleg viðmið

a)

Rétt

b)

Rangt