wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Styrjaldir og Kreppa bls. 101-103

Total questions: 15

Worksheet time: 8mins

Name
Class
Date
1.

Hversu marga hermenn máttu Þjóðverjar vera með samkvæmt Versalasamningnum?

a)

50.000

b)

80.000

c)

100.000

d)

200.000

2.

Hvers vegna gerðu Bretar og Frakkar ekkert í því þegar Hitler fór að stækka þýska herinn?

a)

Þeir voru hræddir við hann

b)

Þeir vildu vera vinir hans

c)

Þeir trúðu því að Hitler vildi frið

d)

Þeir gátu ekkert gert í því

3.

Hvað er herskylda?

a)

Þegar ungir menn verða að ganga í herinn í einhvern tíma og fá herþjálfun

b)

Þegar ríkisstjórninni ber skylda að mynda her til að verja landið

c)

Þegar herinn þarf að sverja að verja landið gagnvart óvinum

d)

Þegar fólk fer sjálfviljugt í herinn og fær herþjálfun

4.

Hvað er viðskiptabann?

a)

Þegar ríki banna öðrum ríkjum að stunda viðskipti við eitthvað eða einhver ákveðin ríki

b)

Þegar eitt eða fleiri ríki stöðva viðskipti við land í því skyni að knýja fram pólitíska ákvörðun

c)

Þegar ríki bannar þegnum sínum að stunda viðskipti

d)

Þegar fólk getur ekki selt vörur sínar vegna ákvörðun ríkisstjórnarinnar

5.

Hvaða Afríkuríki réðst Ítalía á árið 1935?

a)

Keníu

b)

Eþíópíu

c)

Egyptaland

d)

Túnis

6.

Hvað reyni Þjóðabandalagið að gera til að stöðva innrás Ítala í Eþíópíu?

a)

Gerðu innrás í Norður-Ítalíu

b)

Sendu vopn til Eþíópíu

c)

Settu viðskiptabann á Ítali

d)

Báðu Ítali kurteisislega um að hætta þessu

7.

Hvert var fyrsta ríkið sem Þjóðverjar lögðu undir sig árið 1938?

a)

Súdetaland

b)

Tékkóslóvakía

c)

Pólland

d)

Austurríki

8.

Hver var forsætisráðherra Bretlands árið 1938'

a)

Winston Churchill

b)

Rishi Sunak

c)

Margaret Thatcher

d)

Neville Chamberlain

9.

Hverjir höfðu lofað að hjálpa Tékkum ef ráðist yrði á Tékkóslóvakíu?

a)

Bretar og Frakkar

b)

Bretar og Sovétríkin

c)

Frakkar og Sovétríkin

d)

Enginn

10.

Hvers vegna vildi Hitler ráðast inn í Austurríki og Tékkóslóvakíu?

a)

Þar bjuggu milljónir Þýskumælandi einstaklinga

b)

Hann vildi ofsækja gyðinga í löndunum

c)

Til að styrkja landamæri Þýskalands gagnvart öðrum þjóðum

d)

Hann vildi koma í veg fyrir yfirtöku kommúnista í löndunum

11.

Hvaða samning gerðu Þýskaland og Sovétríkin þann 23. ágúst 1939?

a)

Ef ráðist er á annað þeirra kemur hitt landið til varnar

b)

Að ráðast ekki á hvort annað

c)

Samkomulag um eilífðarvinsemd

d)

Að gyðingar á báðum ríkjum yrðu færðir í ákveðnar fangabúðir

12.

Hvaða leynilega viðbótarsamning gerðu Hitler og Stalín?

a)

Að útrýma gyðingum í Evrópu

b)

Að smíða fangabúðir í Póllandi fyrir gyðinga

c)

Að skipta Evrópu á milli sín

d)

Að löndin myndu deila tækninýjungum og vopnum

13.

Hvers vegna samþykkti Hitler að gera samning við Stalín?

a)

Til þess að Þýskaland gæti lagt Pólland undir sig án mikilla erfiðleika

b)

Löndin áttu margt sameiginlegt og þeir tveir áttu gott samband

c)

Svo hann myndi ekki þurfa að berjast við Sovétríkin og Vesturlönd samtímis

d)

Hann óttaðist her Sovétríkjanna og taldi að her Þýskalands væri ekki orðinn nógu sterkur til að kljást við hann

14.

Hvers vegna fóru Bretar og Frakkar í stríð við Þjóðverja?

a)

Þjóðverjar réðust inn í Austurríki

b)

Þjóðverjar réðust inn í Tékkóslóvakíu

c)

Þjóðverjar réðust inn í Pólland

d)

Þjóðverjar réðust inn í Frakkland

15.

Seinni heimsstyrjöldin hófst árið 1939 en hvaða dag hófst hún?

a)

2. janúar

b)

6. júní

c)

1. september

d)

2. september