wayground logo

Free Printable Worksheets

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Um Víða Veröld: Jörðin bls. 58-89

Total questions: 20

Worksheet time: 11mins

Name
Class
Date
1.

Hvert af eftirfarandi er ekki lofttegund í lofthjúpnum?

a)

Köfnunarefni (Nitur)

b)

Súrefni

c)

Argon

d)

Vetni

2.

Hvert af eftirfarandi er ekki lag í lofthjúpnum?

a)

Veðrahvolfið

b)

Ósónhvolfið

c)

Miðhvolfið

d)

Hitahvolfið

3.

Hverju veitir ósónlagið okkur vernd gegn?

a)

Loftsteinum

b)

Geimverum

c)

Útfjólubláum geislum

d)

Gróðurhúsaáhrifum

4.

Hvaða tvær lofttegundir, ásamt vatnsgufu, mynda svokölluð gróðurhúsaáhrif á Jörðinni?

a)

Köfnunarefni (Nitur)

b)

Koltvísýringur

c)

Argon

d)

Metan

5.

Hvaðan kemur orkan sem drífur veðrakerfin á Jörðinni?

a)

Úr möttlinum

b)

Frá hafinu

c)

Frá mannfólki

d)

Frá sólinni

6.

Hvaða mælieining er notuð til að mæla loftþrýsting?

a)

Hektópaskal (hPa)

b)

Kílógrömm (kg)

c)

Metrar á sekúndu (m/sek)

d)

Selsíus (°C)

7.

Hvað eru lægð og hæð?

a)

Vindhraði og vindátt

b)

Tegundir fellbylja

c)

Há- og lágþrýstisvæði

d)

Mælieiningar veðurkerfa

8.

Vindur sem blæs úr norðri nefnist...

a)

Norðanvindur

b)

Sunnanvindur

c)

Heimskautavindur

d)

Sviftivindur

9.

Hvað nefnist lágþrýstisvæðið sem fylgir ávallt hæstu stöðu sólar?

a)

Miðbaugur

b)

Kyrrabeltið

c)

Ofurlægðin

d)

Meginskil

10.

__________ eru hlýir og þægilegir vindar sem blása inn að miðbaug en þar hitnar loftið, léttist, leitar í efri loftlög og blæs aftur til hvarfbauganna.

a)

Vestanvindar

b)

Meginvindar

c)

Árstíðarvindar

d)

Staðvindar

11.

Hvaða hugtak er notað til að lýsa því þegar hlýtt og rakt loft úr suðri mætir köldu heimskautalofti?

a)

Meginskil

b)

Norðanátt

c)

Hitaskipti

d)

Monsúnvindar

12.

Hvert af eftirfarandi er ekki dæmi um árstíðarvinda?

a)

Monsúnvindar

b)

Fellibyljir

c)

Skýstrokkar

d)

Þrumuveður

13.

Hvað nefnist hlýr og þurr vindur sem blæs af fjöllum en hann hefur skilið mestallan raka eftir á fjallinu?

a)

Vestanvindur

b)

Hnúkaþeyr

c)

Áveður

d)

Sólfarsvindur

14.

Svala loftið sem blæs inn yfir ströndina á sólríkum sumardegi nefnist...

a)

Landgola

b)

Hafgola

c)

Strandgola

d)

Sjávargola

15.

Hvað kallast allt það sem fellur til jarðar úr skýjum?

a)

Regn

b)

Úrkoma

c)

Vatnsleysing

d)

Umhleyping

16.

Í hvaða flokka flokkum við ský?

a)

Háský, miðský, lágský

b)

Regnský, þurrský, þokský

c)

Klósiga, blika og netjur

d)

Flákaský, bólstraský og gráblikur

17.

Í hvaða tveimur loftslagsbeltum er Ísland?

a)

Heimsskautabeltinu

b)

Kuldabeltinu

c)

Tempraða beltinu

d)

Heittempraða beltinu

18.

Í hvaða skógum er að finna trjátegundir á borð við birki, aspir, reynivið og víðitegundir?

a)

Freðmýri

b)

Barrskógum

c)

Laufskógum

d)

Greinskógum

19.

Hvað af þessu flokkast sem grasslétta?

a)

Savannar

b)

Freðmýrar

c)

Steppur

d)

Miðjarðarhafsgróður

20.

Hver er stærsta eyðimörkin á Jörðinni?

a)

Atacama

b)

Gobí

c)

Kalaharí

d)

Suðurskautslandið