NEW
Font size
WorksheetsUpprifjun
Total questions: 20
Worksheet time: 10mins
Frá apríl-júní 2021 greindust 316 tilfelli MIS-C á hver 1.000.000 börn sem höfðu áður greinst með Covid.
Algengi
Uppsafnað nýgengi
Nýgengitíðni
Til að reikna út hversu mikilli áhættu útsetning veldur reiknum við:
Rekjanlega áhættu% hjá útsettum (AR%)
Áhættumismun / rekjanlega áhættu (RD/AR)
Nýgengi á meðal útsettra
Áhættuhlutfall (RR)
...en til að reikna út hversu líklegt er að sjúkdómur útsetts einstaklings orsakist af útsetningunni reiknum við:
Áhættuhlutfall (RR)
Áhættumismun / rekjanlega áhættu (AR/RD)
Nýgengi á meðal útsettra
Rekjanlega áhættu% hjá útsettum (AR%)
Hentugasta rannsóknasniðið til að kanna algengi útkomu í þýði heitir:
Ferilrannsókn (cohort)
Íhlutandi rannsókn (RCT)
Tilfella-viðmiðarannsókn (case-control)
Þversniðsrannsókn (cross-sectional)
Gruggari getur:
Falið raunveruleg tengsl
Búið til tengsl þar sem engin eru
Ýkt raunveruleg tengsl
Allt ofantalið
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af eftirfylgnibjögun (retention bias) í:
Afturskyggnri ferilrannsókn (retrospective cohort)
Framskyggnri ferilrannsókn (prospective cohort)
Íhlutandi rannsókn (RCT)
Tilfella-viðmiðarannsókn
Hvað af þessu er EKKI aðferð til að takast á við gruggun?
Slembiskipting (randomization)
Mantel-Haenszel
Pörun (matching)
Ekkert af þessu
Hentugasta rannsóknasniðið þegar útkoma er mjög sjaldgæf er:
Ferilrannsókn
Íhlutandi rannsókn
Tilfella-viðmiðarannsókn
Þversniðsrannsókn
...en þegar útsetning er mjög sjaldgæf er það:
Ferilrannsókn
Íhlutandi rannsókn
Tilfella-viðmiðarannsókn
Þversniðrannsókn
Til að lágmarka gruggun af völdum ómælanlegra þátta notum við:
Slembiskiptingu (randomization)
Lagskiptingu (stratification)
Pörun (matching)
Takmörkun (restriction)
Rannsóknin Líðan þjóðar í Covid hafði um 60% svarhlutfall í gagnasöfnun númer tvö.
Þetta gæti valdið:
Minnisbjögun (recall bias)
Frásagnarbjögun (reporting bias)
Spyrilsbjögun (interviewer bias)
Eftirfylgnibjgun (retention bias)
Tvíblindar rannsóknir draga úr:
Bæði frásagnarbjögun og spyrilsbjögun
Frásagnarbjögun
Spyrilsbjögun
Frásagnarbjögun á við um mismunandi þætti í mismunandi þýðum.
Rétt
Rangt
Því hærra innra réttmæti sem rannsókn hefur, því betra er alhæfingargildið.
Rétt
Rangt
Aðalgagnagreiningu íhlutandi rannsókna ætti að:
Byggja á upphaflegri slembiskiptingu
Byggja á raunverulegri útsetningu
Byggjast á undirhópum
Ákveða eftir að við skoðum gögnin
Gagnlíkindahlutfall (OR) er eini mælikvarðinn á tengsl í:
Ferilrannsóknum
Íhlutandi rannsóknum
Tilfella-viðmiðarannsóknum
Þversniðsrannsóknum
Við megum túlka gagnlíkindahlutfall (OR) sem áhættuhlutfall (RR):
Ef það er úr tilfella-viðmiðarannsókn
Ef það er úr þversniðsrannsókn
Ef að útkoman er sjaldgæf
Ef að útsetningin er sjaldgæf
Ef við fækkum einkennum sem þarf að hafa til að skimast jákvætt fyrir ADHD:
Hækkar næmi (sensitivity)
Hækkar sértæki (specificity)
Ef að lækning við sjúkdóm er ekki til en ný meðferð lengir lífið:
Hækkar nýgengi
Lækkar nýgengi
Hækkar algengi
Lækkar algengi
Miðað við raunveruleg tengsl væru grugguðu tengslin á myndinni
Of nálægt núlli (RR/OR=0)
Of fjarri núlli (RR/OR=0)
Of nálægt núllgildi (RR/OR=0)
Of fjarri núllgildi (RR/OR=0)
