wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Hvað er samfélag?

Total questions: 20

Worksheet time: 10mins

Name
Class
Date
1.

Hvert er aðal viðfangsefni félagsvísinda?

a)

Hlutverk samfélaga

b)

Hlutverk Þjóðfélaga

c)

Maðurinn og samskipti milli manna

d)

Allt í öllum heiminum

2.

Hver þessara hópa myndar þjóðfélag?

a)

Gyðingar

b)

Rússar

c)

Akureyringar

d)

Aðdáendur Liverpool

3.

Hvað skilgreinir samfélag

a)

Hópur fólks í skipulögðum félagsskap sem hefur samskipti hvert við annað.

b)

Hópur fólks sem býr á sama svæði og talar sama tungumál.

c)

Samtök margra félagasamtaka.

d)

Samtök fólks um ákveðin málefni.

4.

Hvað þýðir það að enginn er eyland?

a)

Að manneskjan er ekki eyja í hafinu.

b)

Að manneskjan þarf félagsskap við annað fólk.

c)

Að manneskjan geti ekki lifað á eyðieyjum.

d)

Að manneskjan geti ekki átt land.

5.

Við hvað líkti Emile Durkheim samfélögum?

a)

Lönd og landamæri.

b)

Dýrum í frumskógi.

c)

Áhöfn á skipi.

d)

Stóra og flókna lífveru.

6.

Hvað eru viðmið?

a)

Skráðar og óskráðar reglur samfélagsins um hvernig fólk á að haga sér.

b)

Merkimiðar sem fólk er dæmt útfrá.

c)

Markmið sem ber að stefna að.

d)

Gjöful fiskimið.

7.

Hvað er sjálfsmynd skv. félagsvísindunum?

a)

Mynd sem þú tekur af sjálfum þér (selfie).

b)

Þín eigin hugmynd um hvernig samfélög virka.

c)

Allar hugmyndir sem þú hefur um hver þú ert.

d)

Þær hugmyndir sem aðrir hafa um þig.

8.

Á hvaða aldursskeiði mótast sjálfsmyndin mest?

a)

Á barnsaldi.

b)

Á unglingsárunum.

c)

Hjá yngra fullorðnu fólki, 20-40 ára.

d)

Hjá eldra fullorðnu fólki, yfir 40 ára.

9.

Hvað af þessu fylgdi í kjölfar landbúnaðarbyltingarinnar?

a)

Hlutverk samfélaga urðu til.

b)

Jafnrétti kvenna og karla jókst.

c)

Vísindaþekking jókst til muna.

d)

Verkaskipting jókst, þ.e. stéttir mynduðust.

10.

Skólaskyldu var komið á 1907 á Íslandi, en hvað var hún löng til að byrja með?

a)

2 ár.

b)

4 ár.

c)

6. ár

d)

8. ár

11.

Hvað eru gildi?

a)

Hugmyndir um hvað sé æskilegt og gott.

b)

Mælikvarðar sem samfélög eru mæld á.

c)

Skráðar og óskráðar regur um hvernig á að hegða sér.

d)

Samtök atvinnugreina.

12.

Réttindi kvenna voru minni en karla lengst af. Hvenær fengu konur kosningarétt?

a)

1703

b)

1819

c)

1915

d)

2004

13.

Hvort útskrifast fleiri konur eða karlar úr háskólanámi?

a)

Konur.

b)

Karlar.

c)

Það útskrifst jafn margar konur og karlar.

14.

Hver af þessum fræðigreinum tilheyrir félagsvísindum?

a)

Eðlisfræði.

b)

Hagfræði.

c)

Stærðfræði.

d)

Jarðfræði.

15.

Fyrir hvað stendur Fair Trade merkið?

a)

Að kaupmaðurinn fái sanngjarnt verð fyrir vöruna.

b)

Að varan uppfylli öryggisstaðla Evrópusambandsins.

c)

Að þau sem búa til vöruna fá sanngjörn laun fyrir.

d)

Að auka hagvöxt í þróunarlöndum.

16.

Hvað er félagsmótun?

a)

Þau áhrif sem einstaklingar hafa á samfélagið.

b)

Hvernig stjórnmálamenn móta samfélög.

c)

Þau áhrif sem samfélagið hefur á einstaklinga.

d)

Hvernig samfélagið hegðar sér.

17.

Hvað af þessu er meðal helstu hlutverka samfélaga?

a)

Að sjá til þess að fólk þekki stöðu sína í samfélaginu.

b)

Að gæta þess að sem flestir stundi landbúnað.

c)

Að sjá íbúum fyrir nauðþurftum.

d)

Að tryggja jafnrétti í samfélaginu.

18.

Hvað er sjálfsþurftarbúskapur?

a)

Þegar maður þarf að búa allt til sjálfur.

b)

Sú tegund landbúnaðar sem varð til í landbúnaðarbyltingunni.

c)

Óviðráðanleg löngun til að leggja stund á landbúnað.

d)

Hvert býli framleiðir nóg fyrir sjálft sig en lítið umfram það.

19.

Hvaða námsgrein var gerð að skyldunámsgrein með konungsbréfinu 1790?

a)

Reikningur

b)

Lestur

c)

Skrift

d)

Kristin fræði

20.

Hvað á Íslendingur sem fæddist árið 2005 sameiginlegt með einhverjum sem fæddist á Íslandi 1805?

a)

Þau hafa sömu möguleika á menntun.

b)

Þau hafa sömu tækifæri til að ferðast um heiminn.

c)

Þau tala sama tungumálið.

d)

Þau tilheyra sama þjóðfélagi.