Font size
WorksheetsStríðsárin á Íslandi: Kafli 4 - Atvinna
Total questions: 12
Worksheet time: 6mins
Af hverju var mikið atvinnuleysi á Íslandi fyrir seinni heimsstyrjöldina?
Það þurfti færri til að vinna við landbúnað
Það var kreppa í heiminum
Fólk gat sótt um sveitastyrk
Öll viðskipti fóru fram með vöruskiptum
Af hverju hvarf atvinnuleysið eftir að Bretar hernámu Ísland? Fleiri en eitt rétt svar.
Herinn réð Íslendinga í vinnu því það þurfti að byggja svo margt fyrir herinn
Bretar tóku atvinnutækin af Íslendingum svo það þurfti að vinna allt með mannafli
Fólki í landinu fjölgaði mjög mikið og því varð mikið meiri eftirspurn eftir fólki í alls konar þjónustustörf
Sett var á stofn þjóðskylduvinna og allir sem höfðu verið atvinnulausir voru skyldaðir til að vinna í henni
Hvað voru margir skráðir atvinnulausir í Reykjavík á nóvember 1939?
460
800
1700
Tæplega fjögur þúsund
Hvað unnu margir Íslendingar fyrir herinn þegar mest var?
460
800
1700
Tæplega fjögur þúsund
Hvar var mest af framkvæmdum breska hersins? Fleiri en eitt rétt svar.
Akureyri
Hvalfirði
Reykjavík
Seyðisfirði
Hvaða áhrif hafði Bretavinnan á byggðaþróun á Íslandi?
Engin
Fólk flutti frá stöðum þar sem breskir hermenn voru
Fólk flutti til staða þar sem var hægt að fá vinnu hjá breska hernum
Betri vegir urðu til þess að fólk gat sótt vinnu lengra frá heimabæ sínum
Af hverju varð mikill húsnæðisskortur í Reykjavík í seinni heimsstyrjöldinni?
Það fluttu svo margir þangað til að fá vinnu hjá hernum að það var ekki til húsnæði fyrir alla
Bretar byggðu braggahverfin ekki nógu hratt til þess að allir gætu fengið að búa í þeim
Þeir sem áttu húsnæði leigðu Bretum það þannig að Íslendingar sem ekki gátu borgað jafn háa leigu urðu húsnæðislausir
Bretar rifu mörg hús sem þóttu hindra varnir borgarinnar eða voru í skotlínu frá stórskotaliðsbyssum þeirra.
Hvaða nýjungar í launavinnu uppgötvuðu Íslendingar í Bretavinnunni? Fleiri en eitt rétt svar.
Það skipti meiru að þykjast vinna en að vinna
Iðjusemi og dugnað
Kaffitíma og pásur
Að vinna hratt í stuttum lotum og hvíla á milli
Af hverju báðu íslensk stjórnvöld Breta um að fækka í Bretavinnunni?
Þau vildu ekki að íslenskir verkamenn fengju góð laun
Þau vildu ekki að Íslendingar væru að vinna í hernaði
Það vantaði verkafólk í sjávarútveg og landbúnað
Bretar borguðu hærri laun en íslenskir atvinnurekendur gátu gert
Af hverju högnuðust Íslendingar á stríðinu meðan aðrar Evrópuþjóðir liðu skort og þjáningar? Fleiri en eitt rétt svar.
Það urðu engin stríðsátök á Íslandi
Íslenskar útflutningsvörur, aðallega fiskur, hækkaði í verði
Bretar og síðar Bandaríkjamenn eyddu miklum fjármunum á Íslandi
Margir Íslendingar fengu vinnu hjá hernum og laun í erlendum gjaldeyri
Hvað er braggi og til hvers voru þeir byggðir?
Hús úr steypu og járni til að hýsa hergögn.
Hálftunnulaga hús sem herinn byggði fyrir sjálfan sig
Hús sem ríkið lét byggja vegna húsnæðisskorts í Reykjavík
Virki við sjávarsíðuna fyrir stórskotaliðsbyssur
Hvað var breski herinn og seinna sá bandaríski oft kallaður á Íslandi?
Hernámsliðið
Bandamenn
Setuliðið
The B-boys
