wayground logo

Free Printable Worksheets

NEW

Font size

S
M
L
XL
Worksheets

Kafli 1 - Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur

Total questions: 9

Worksheet time: 9mins

Name
Class
Date
1.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvað eru peningar og hvenær eru þeir notaðir?

a)

Peningar eru greiðslumiðill og eru notaðir þegar einstak­lingar, fyrirtæki eða stofnanir skiptast á verðmætum

b)

Seðlar, myntir og stutt lán

c)

Debet og kreditkort

d)

Pappírseðill með mynd af frægu fólki

2.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvaða banki hefur einkarétt til að gefa út peningaseðla og peninga úr málmi?

a)

Landbanki Íslands

b)

Gleðibankinn

c)

Seðlabanki Íslands

d)

Íslandsbanki og Arion banki

3.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvernig færast peningar mest á milli lögaðila á 21. öldinni?

a)

Með vöruskiptum

b)

Með kreditkortum

c)

Með peningaseðlum

d)

Með rafrænum millifærslum í netbanka, með farsíma eða greiðslukortum

4.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hver er munurinn á debet og kreditkorti?

a)

Með debetkorti er fjárhæð millifærð beint af banka­reikn­ingi en með kreditkorti stofnast skuld við kortafyrir­tæki sem er gerð upp á næsta greiðslutímabili

b)

Með kreditkorti er fjárhæð millifærð beint af banka­reikn­ingi en með debetkorti stofnast skuld við kortafyrir­tæki sem er gerð upp á næsta greiðslutímabili

c)

Debetkort er notað til að greiða peninga en kreditkort til að leggja inn á bankareikning

d)

Debet og kreditkort er venjulega ólík á litinn

5.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvernig eru snjallsímar notaðir sem greiðslumiðill í viðskiptum?

a)

Notandi hringir í bankann sinn og biður hann um að greiða

b)

Greiðslur með farsíma eru oftast tengdar netbanka eða greiðslukortum

c)

Greiðslur með farsíma fara fram með milligöngu símaframleiðanda

d)

Notandi sendir SMS á banka sem millifærir

6.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hver er öruggasta leiðin til að skiptast á peningum?

a)

Með snjallsímum vegna þess að greiðslur eru staðfestar með fingrafaralesara eða andlitsskanna

b)

Með greiðslukortum vegna þess að greiðslur yfir tilteknum fjárhæðum eru staðfestar með PIN-númeri

c)

Með peningum vegna þess að það svo erfitt að falsa þá

d)

Í banka undir eftirliti öryggisvarðar

7.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvenær geta börn eða unglingar byrjað að nota greiðslukort?

a)

Þegar foreldrar leyfa

b)

9 til 10 ára aldri

c)

Frá 13 til 14 ára aldri

d)

Frá 15 til 16 ára aldri

8.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvað er fyrirframgreitt kreditkort?

a)

Kreditkort sem er aðeins hægt að nota með fyrirframgreiðslu og jákvæðri inneign

b)

Kreditkort sem er aðeins hægt að nota upp að tiltekinni fjárhæð sem banki hefur staðfest

c)

Kreditkort sem er notað til að greiða vörur og þjónustu fyrirfram

d)

Debetkort í felubúningi

9.

Peningar, seðlar, kort og rafrænar greiðslur


Hvers vegna eru fyrirframgreitt kreditkort góður kostur til að greiða fyrir ferðalög?

a)

Vegna ferðatrygginga sem fást með greiðslu ferðalaga og neyðarþjónustu á ferðlögum

b)

Vegna þess að kreditkort er hægt að nota til að greiða í hvaða mynt sem er

c)

Vegna þess hvað það fer lítið fyrir kortunum sem er kostur á ferðalögum

d)

Til að geta eytt miklu á ferðalögum