NEW
Font size
WorksheetsKafli 2 - Að taka lán og greiða af því
Total questions: 13
Worksheet time: 10mins
Að taka lán og greiða af því
Hvað á fólk að gera áður en það ákveður að taka lán?
Ekkert
Meta tilgang, ábata og hvort hún/hann geti endurgreitt lán miðað við mismunandi forsendur
Spyrja sjálfan sig hvað viðkomandi vill taka hátt lán
Yfirfara hvar er fljótlegast að taka lán
Að taka lán og greiða af því
Hvað þarf að yfirfara áður en ákvörðun um lán er tekin?
Tilgang, greiðslugetu og hvort lántaki geti útvegað nauðsynlegar tryggingar
Lánsfjárhæð, lánstíma og afgreiðslutíma umsóknar
Lánskjör og lánsfjárhæð
Umsóknarferli og hvort hægt sé að sækja um rafrænt og undirrita með rafrænum skilríkjum
Að taka lán og greiða af því
Hverjar eru mögulegar afleiðingar þess ef lántaki getur ekki greitt af láni?
Ekkert til að hafa áhyggjur af, bara borga seinna
Lánveitandi getur orðið ofboðslega reiður
Dráttarvextir og innheimtukostnaður
Aukinn kostnaður (dráttarvextir, innheimtukostnaður), veðsett eign er mögulega tekin af lántaka og lánshæfismat versnar sem getur haft áhrif á hæfi til að taka lán síðar
Að taka lán og greiða af því
Nefndu tvær tegundir lána og mögulegan ábata af þeim
Námslán sem leiðir til aukinna lífsgæða og húsnæðislán sem leiðir til lægri húsnæðiskostnaðar og öruggurra húsnæðis
Námslán sem má nota til að kaupa bíl og skammtímalán til að fjármagna skemmtanir.
Yfirdráttur til að greiða fyrir nýjan snjallsíma og húsnæðislán til að greiða fyrir heimsferð
Smálán til að greiða fyrir kvöldverð á veitingastað og annað til greiða fyrir nudd og vellíðan snyrti og nuddstofu daginn eftir
Að taka lán og greiða af því
Hvernig geta einstaklingar metið getu til að endurgreiða lán?
Með því að bera saman lánsfjárhæð og laun
Með því að reikna ÁHK fyrir mismunandi lán.
Með því að meta hversu mikið er eftir af launum í lok mánaðar.
Með greiðslumati sem segir til um greiðslugetu og reikna síðan greiðsluáætlun láns miðað við mismunandi forsendur um tekjur, gjöld, verðbólgu og vexti
Að taka lán og greiða af því
Hvað þurfa lánveitendur að kanna áður þeir veita lán til einstaklinga?
Gera lánshæfismat og yfirfara hvort umsókn er rétt fyllt út
Gera lánshæfismat og meta greiðslugetu umsækjanda
Gera lánshæfismat og útbúa lánsskjöl
Spyrja hvað umsækjandi ætli að gera við lánsfjárhæðina
Að taka lán og greiða af því
Hvað er lánshæfismat?
Mat á líkum þess að umsækjandi um lán fái lánið
Mat á hæfi lánveitanda til að veita lán
Mat á líkum þess að umsækjandi um lán geti endurgreitt það
Mat á líkum þess að einstaklingur sæki um lán
Að taka lán og greiða af því
Hvað er greiðslumat?
Útreikningur á greiðslugetu lántaka miðað við eignir, skuldir, tekjur og gjöld
Útreikningur á greiðsluáætlun láns miðað við mismunandi forsendur
Samantekt á upplýsingum um afborganir lána fyrir skattframtal
Mat á greiðsluvilja einstaklings til að endurgreiða lán
Að taka lán og greiða af því
Hvernig geta lántakar gert endurgreiðslur og afborganir lána þægilegar?
Með því að steypa saman öllum greiðslum í eina greiðslu á ári
Með mánaðarlegum greiðslum eða með því að leggja fyrir mánaðarlega ef afborganir eru sjaldnar
Með því að hafa afborganir í lok mánaðar eða þegar búið er að greiða öll útgjöld mánaðarins
Með því að vera rólegur og hugsa lítið eða ekkert um afborganir lána
Að taka lán og greiða af því
Er skynsamlegt að endurgreiða lán hraðar en samkvæmt skilmálum láns?
Það er venjulega góð ákvörðun því útlánsvextir eru yfirleitt hærri en innlánsvextir.
Það borgar sig ekki því innlánsvextir eru oftast hærri en útlánsvextir
Það skiptir ekki máli, það er alltaf hægt að greiða meira seinna
Nei, því þá þarf að taka annað lán ef fólki langar til að kaupa eitthvað sem það langar ofboðslega til að eignast
Að taka lán og greiða af því
Hvenær er skynsamlegt að endurfjármagna eldri lán?
Þegar ný lán bjóðast á betri kjörum (lægri vextir) og hægt er að greiða upp eldri lán án mikils kostnaðar
Ef það er hægt er að greiða upp eldri lán án mikils kostnaðar
Ef hægt er að fá nýtt lán til lengri tíma
Það borgar sig alltaf, alveg eins og það er skynsamlegt að endurnýja bíla reglulega
Að taka lán og greiða af því
Hvenær er skynsamlegt að endurfjármagna eldri lán?
Þegar ný lán bjóðast á betri kjörum (lægri vextir) og hægt er að greiða upp eldri lán án mikils kostnaðar
Ef það er hægt er að greiða upp eldri lán án mikils kostnaðar
Ef hægt er að fá nýtt lán til lengri tíma
Það borgar sig alltaf, alveg eins og það er skynsamlegt að endurnýja bíla reglulega
Að taka lán og greiða af því
Hvað á lántaki að gera sem lendir í greiðsluerfiðleikum?
Sækja strax um nýtt lán og endurfjármagna lán í vanskilum
Hafa strax samband við lánveitanda og leitast við að breyta skilmálum til að forðast frekari erfiðleika og koma í veg fyrir að aukinn kostnað
Bíða með að hafa samband við lánveitanda þar til búið er að leita allra annara leiða til að greiða af láni
Anda djúpt og bíða þar til erfiðleikar eru yfirstaðnir
