NEW
Font size
WorksheetsKafli 3 - Safnaðu frekar en að taka lán
Total questions: 6
Worksheet time: 5mins
Safnaðu frekar en að taka lán
Af hverju er hagstæðara að kaupa eign með því að safna frekar en að taka lán?
Það er ekki hægt að segja að annað sé hagstæðara en hitt
Það er hagkvæmara að kaupa eignir með lántöku því þá er hægt að taka eign strax í notkun
Af því að sá sem safnar fær vexti (útlánsvexti) en sá sem tekur lán greiðir vexti (innlánsvexti) og lánskostnað
Af því að sá sem safnar fær vexti (innlánsvexti) en sá sem tekur lán greiðir vexti (útlánsvexti) og lánskostnað
Safnaðu frekar en að taka lán
Hvaða áhætta fylgir lántöku?
Hættan á að lán bjóðist á miklu betri kjörum síðar
Hættan á að ekki verði hægt að taka fleiri lán í framtíðinni vegna skuldsetningar
Hættan á að gleyma afborgun
Mögulegir greiðsluerfiðleikar, t.d. vegna breytinga á atvinnutekjum, fjölskylduaðstæðum, veikinda eða slysa, óvæntrar verðbólgu og fleira
Safnaðu frekar en að taka lán
Hvaða mælikvarða er best að nota til að meta lánskjör fyrir stutt og meðallöng lán?
Árlega hlutfallstölu kostnaðar - ÁHK
Vexti
Mánaðarlegar afborganir
Lánshæfismat
Safnaðu frekar en að taka lán
Ef tölva sem kostar 200.000 krónur er keypt með skuldabréfaláni til 24 mánaða verður heildarkostnaðurinn 241.000 krónur en ef safnað er fyrir tölvunni þarf að leggja út 196.000 krónur. Af hverju er ódýrara að safna fyrir tölvunni? Hver er ókosturinn að safna fyrir tölvunni?
Ódýrara af því það er ódýrara að staðgreiða tölvuna heldur en að taka lán. Ókostur er að mögulega verður tölvan uppseld í lok sparnaðartíma
Vegna vaxtamunar á innláns og útlánsvöxtum. Ókostur er að það tekur langan tíma að safna upp í kaupverð
Safnaðu frekar en að taka lán
Hvað ætti að vera meginreglan, að safna eða taka lán, þegar hlutir eru keyptir?
Það er venjulega ódýrara að taka lán frekar en að safna, það á að vera meginreglan
Það er venjulega ódýrara að safna frekar en að taka lán, það á að vera meginreglan
Það er hægt að kaupa eign strax með lántöku, það ætti að vera meginreglan
Hver og einn á að vera sjálfstæður og gera það sem honum þykir best hverju sinni
Safnaðu frekar en að taka lán
Í hvaða tilvikum er hagkvæmara að kaupa eign með lántöku frekar en sparnaði?
Ef ekki er hægt að bíða eftir eign, t.d. tölvu sem þarf að nota strax, eða þegar það tekur mjög langan tíma af safna fyrir eign, t.d. íbúð sem tekur áratugi að safna fyrir
Ef búist er við að vextir hækki í framtíðinni
Ef hægt er að kaupa eign á einstaklega hagstæðu verði núna
Ef einhverjum langar ofboðslega mikið í einhvern hlut. Hann verður hvort sem er greiddur síðar
