WorksheetsÍSAT - matvæli setningar og myndir
Total questions: 61
Worksheet time: 2hrs 2mins
Apinn Kókó elskar banana.
Kjartan er að borða hamborgara.
Í heimilisfræði eru Kanar og Birna að baka kökur.
Hollur matur er góður fyrir mann, heilsusamlegur.
Óhollur matur er slæmur fyrir mann, óheilsusamlegur og fitandi.
Hala er búinn að skera niður ananas og borðar með bestu lyst.
Særún er sátt með sinn 12 tommu kjúklingabát.
Á föstudagskvöldum fær Hannes sér kaldan bjór eftir tónleikahald.
Nicole er búinn að týna fullt af appelsínum og setja í fötu.
Í morgunmat fær Norbert sér egg, ávexti og djús.
Gulli grís borðar allt en honum þykir epli best.
Eiríkur drekkur appelsínudjús eftir skóla.
Bjarni forstjóri byrjar alla morgna á að fá sér kaffi.
Anna fær sér ískalda mjólk að drekka.
Bein er eitthvað sem flestir hundar elska.
Eftir skóla fær Elías sér alltaf epli.
Á þriðjudögum fær Júlía sér fisk að borða í hádeginu.
Kötturinn Grettir elskar fisk.
Ásta fær sér hafragraut í hádegismat og fjóra eplabita
Ramyar er að borða morgunkorn áður en hann fer í skólann.
Af hverju eru mörgæsir í frystinum?
Jón er að grilla fyrir fjölskylduna.
Ágúst er að borða hamborgara.
Ef einhver kann að grilla góða hamborgara þá er það Sammi svín.
Ísskápurinn hans Jóa er galtómur.
Kristjana elskar sjeik svo mikið að hún fær sér alltaf tvo í einu.
Þórunn er að grilla pylsur.
Sigríður tekur mat út úr frystinum.
Njörður er með mjólkurskegg langt út á kinn.
Hilmar grillar hamborgara og pylsur í nýja grillinu sínu.
Óli grís er að borða stóra gulrót.
Birta er að borða morgunkorn.
Denislav fær sér núðlusúpu í hádegismat og ávexti í eftirrétt.
Guðrún elskar að fá sér ostaköku í eftirrétt.
Á þriðjudögum fær Hjálmar sér tvær pítsur með pepperoni og nautahakki.
Kokkurinn kom fram með ilmandi pítsu.
Palli panda er skrítinn, hann elskar popp.
Ramyar er að fá sér eina með öllu.
Skjaldbakan Valdi er að borða pítsu.
Jón er að borða pylsu.
Enas finnst gott að fá sér salat.
Heiða er að borða samloku.
Almar borðar spaghettí í kvöldmat.
Guðrún frænka fær sér te í græna stólnum sínum.
Martyna er að borða vínber.
Eyþór fékk sér köku í eftirrétt og er allur út í súkkulaði.
Á laugardagskvöldi fór Berglind á steikhús og pantaði sér nautasteik með bernaise-sósu og grænmeti.
Það er óhollt að borða svona mikinn skyndibita.
Það er hollt að borða mikið af ávöxtum og grænmeti.
Hvort á Bragi að fá sér hamborgara eða grænmeti?
Alltaf fær Jóhann sér samloku í hádegismat.
Óskar elskar spaghettí.
Bolabíturinn Rambó gæðir sér á súkkulaðiköku.
Hangikjöt er uppáhalds áleggið mitt.
Eftir fótboltaæfingu fær Jökull sér vatn að drekka.
Gunnar er að borða franskar kartöflur.
Á laugardaginn fékk Norbert sér spaghettí.
Birta, Ásta, Eyþór og Júlíus pöntuðu sér pítsu með pepperoní.
Ari borða elskar að fá sér egg og beikon í morgunmat.
Á föstudögum fær Kjartan sér stóran hamborgara.
Systkynin eru búin að grilla sér fisk.
